Á undan samtíð sinni
Það er einn gamall maður sem í siðferðilegu tilliti er okkur öllum fremri. Í að minnsta kosti þremur málum hefur hann reynst langt á undan samtíð sinni í baráttu sinni fyrir samfélagsumbótum.
Ég er auðvitað að tala um Helga Hóseasson. Þegar hann nam við Iðnskólann á Akureyri á fimmta áratugnum fór hann í hart við nemendur og kennara og það endaði með því að hann var rekinn úr skólanum.
Tilefnið? Reykingar. Helga ofbauð hvernig nemendur og kennarar reyktu þarna upp um alla veggi og sýndu hinum reyklausu ekkert tillit. Eiturgufum var spúð ofan í öndunarveg bindindismannsins Helga, sem brást við með því að krefjast reykingabanns innan veggja skólans.
Hann var rekinn. Þetta þótti fáheyrð heimtufrekja. En hvað hefur gerst? Það er fyrir löngu búið að banna allar reykingar í opinberum byggingum, skólum og hvarvetna. Meira að segja stendur til að banna allar reykingar á veitingastöðum, ölkrám og öðrum öldurhúsum. Slíkar eru framfarirnar.
Í áratugi hefur þessi sami maður barist fyrir því að fólk geti ógilt samning sem kirkjan gerir við ómálga börn og lætur þau svo staðfesta áður en þau komast til vits og ára. Við þekkjum öll þessa baráttu og vitum sem er að Helgi hefur réttlætið og siðferðið með sér þarna líka.
Á síðustu árum hefur áhersla Helga sem mótmælanda mikið færst frá baráttunni gegn kirkjuskriflum og prelátum og yfir á stærri mál. Af ótrúlegum dugnaði og þrautsegju stendur hann vaktina á Langholtsvegi með skilti á borð við Blóð - Busi - Dóri - Davi ellegar kveðskap um stuðning Halldórs og Davíð við blóðhundana í Vestrinu.
Nú erum við hin að vakna af doðaum. Þráinn Bertels breyttist bókstaflega í Helga á baksíðu Fréttablaðsins á mánudaginn og eins og ég hef bent á, í og undir bloggfærslunni um ranglætið, þá er þetta að verða tónninn í hinum almenna borgara.
Helgi er búinn að mótmæla þessu aktíft árum saman. Svona er hann langt á undan okkur. Við ættum öll að taka ofan fyrir þessum réttsýna baráttumanni og hreinlega ganga í lið með honum. Ég mæli með því að fólk taki sig til og búi til sín eigin skilti með blóðbusaboðskap Helga og stilli sér upp með þau við hvert tækifæri.
Helgi er okkur siðferðileg fyrirmynd.


