Sigurði Erni Brynjólfssyni verður slátrað!
Nýlega fjargviðraðist ég út í það að Fréttablaðið tók Rocky út úr blaðinu af því nýja ritstjóranum þótti hann of væld eða eitthvað. Þar sáust alla vega typpi og hland.
Ef ég hef rétt fyrir mér með tepruskap ritstjórans eiga Pú og Pa eftir að fjúka líka. Myndasaga dagsins í dag er of glæsileg til að eiga upp á pallborðið hjá svona kristnum kellíngum. „Þínk offðe tjildren!“
Merkilegt að við ritstjóraskiptin hætti Fréttablaðið líka alveg að vitna í greinar okkar á Vantrú. Ætli kristnu kellingunni í brúnni þyki trúmálaumræða frá þessum sjónarhóli síður boðleg en t.d. stjórnmálaumræða?
Mér fannst nú þessi barnasódóbrandari í Pú og Pa virkilega ósmekklegur og viðbjóðslegur. Veit ekki hvort það hefur eitthvað með kristni að gera. Ekki fyndið.
- - - 0 0 0 - - -
Núnú, var þetta barn? Ég spáði ekkert í það. En þó svo hafi verið, þá er þetta bara raunveruleiki ótal barna, þarna úti eru fjölmargir pedófílar. Má ekki gera grín af þeim?
- - - 0 0 0 - - -
Hef verið að lesa síðuna hjá þér. Það sem ég tók helst eftir að þú ert með kristni á heilanum. Þú ert svona á við tíu trúaða. Þér hlýtur að líða illa. Alla vega ertu með einhverja maníu, virðist vera.
- - - 0 0 0 - - -
Ég hef það fínt, þakkaðér fyrir. Sjá
þetta. Kannski kem ég bara auga á hluti sem þér og flestum eru huldir sökum sinnuleysis ykkar og doða.
Þú virðist vera með kraftadellu og lyftingar á heilanum. Þér hlýtur að líða illa með það ;)
- - - 0 0 0 - - -
Og sjáðu bara greyið hann
Ögmund Jónasson maður! Hann skrifar nánast á hverjum degi eitthvað um pólitík. Hann virðist vera með hana á heilanum. Honum hlýtur að líða mjög illa með það ;)
- - - 0 0 0 - - -
Takk fyrir. Já ég er með vott af kraftadellu eða var. Allavega er hún ekki krónísk. Annars hef ég margar dellur. Já Ögmundur er með pólitík á heilanum, enda fær hann borgað fyrir það svo ég lái honum það ekki. Sjálfur verð ég hálf manískur ef ég fæ einhverja dellu. En þær ganga yfirleit yfir á nokrum vikum. ;)
- - - 0 0 0 - - -
Er það þá ekki bara frekar til marks um ístöðuleysi þitt, fremur en sjúklega þráhyggju hjá okkur Ögmundi?
Hefurðu einhverntíma heyrt minnst á hugtakið hugsjónir?
- - - 0 0 0 - - -
Jú auðvita hefur maður heyrt um hugsjónir. Það er nú bara þannig með okkur mennina að ef við skiljum ekki hvors annars hugsjónir þá tölum við oft um þær eins og þráhyggju viðkomandi.
Ístöðuleysi? Nei. Ég hef bara áhuga á svo mörgu að ég tek allt með trukki í byrjun og helli mér út í hlutinna. Svo sé ég eitthvað nýtt og kanna það. En gamla dellan er alltaf samt til staðar. Ég nenni bara ekki að vera að guttla í mörgu í einu. Vill frekar gefa allt í einn hlut í einu en hef samt öll hin spilin í bakhöndinni.
- - - 0 0 0 - - -
Prjónaðu við