Miðvikudagur 24. nóvember 2004

Fólkið

Það var komið fram hér á blogginu að mér og fleirum er farið að ofbjóða okkar eigið sinnuleysi gagnvart ranglæti og kúgun. Við hittumst og lögðum á ráðin. Útkoman er Fólkið.net.

Fólkið.net stendur fyrir

Með:

Gegnsærri stjórnsýslu
Ábyrgð einstaklinga á gerðum sínum
Að farið sé að lögum

Gegn:

Valdníðslu
Stríðsrekstri
Þátttöku í Íraksstríðinu
"Friðargæslu" í Afganistan
Hernaðarútgjöldum Íslands

Þetta snýst um aðgerðir. Fyrst getur fólk skráð sig á póstlista og breinstormað með okkur um aðgerðir. Þeir sem vilja svo taka þátt í þeim koma sér upp tengslaneti gegnum sms-skilaboð.

Betri útlistun síðar. Skráið ykkur endilega á póstlistann.

Annars er það helst í fréttum að ég stóð við annan mann fyrir utan Alþingishúsið í hádeginu í dag með mótmælaspjald. Í gær vorum við þrír sem stóðum þar frá 10 -12.

Verð þarna aftur á ferðinni á morgun. Aðgerðir eru hafnar.

Birgir Baldursson kl. 19:57 - efni: almennur heilaspuni - vísanir (0)



Viðbætur

Prjónaðu við









Muna þig?






birgir.com