Miðvikudagur 08. desember 2004

Eureka!

Ég er búinn að fatta af hverju mannkynið missti feldinn.

Ég lá í baði áðan. Allar mínar bestu hugmyndir koma í heitu vatni í baðkari. Ég var eitthvað að virða fyrir mér hárafarið á framhandleggjunum og þá rifjaðist það upp fyrir mér þegar, um svona 13 - 14 ára aldurinn, maður tók allt í einu eftir því að lítil loðna var komin ofan á fingurna.

Núna þegar þetta rifjaðist upp fyrir mér fattaði ég að auðvitað hafði maður ekki haft neinn hárvöxt þarna í bernsku, ekki frekar en á kjálkum, bringu eða klofi. En karlar fá aukinn hárvöxt við kynþroskaaldur, ekki bara í klofi og undir höndum eins og konurnar (mikilvægt fyrir ferómóndreifingu) heldur hreinlega vísi af feld um allan líkamann. Og þá rann það upp fyrir mér í einni sjónhendingu:

Eins og fleiri dýrategundir fæðumst við hárlaus, svo feldurinn trufli ekki fæðinguna. Hjá flestum, ef ekki öllum öðrum dýrategundum fær ungviðið svo fljótlega feld, enda stutt í að lífsbaráttan hefjist hjá þeim sjálfum.

En hjá manninum er bernskan löng. Hún tekur mörg ár og allan þann tíma erum við undir verndarvæng foreldra. Feldleysið hlýtur að vera aðferð náttúrunnar til að tryggja umhyggju foreldranna, að halda ungviðinu bernsku í útliti þar til það getur staðið á eigin fótum.

Á sama tíma og bernskan lengist verður samlíðan einstaklinga í mökunarhug flóknari. Menn nálgast ekki lengur kvendýrin af einni tómri kynhvöt, heldur hefur náttúran brugðið á það ráð að blanda bernskuumhyggjunni inn í pakkann, svo karldýrið bindist kerlunni umhyggjuböndum. Það þarf tvo í þetta langa uppeldi.

Og til að tryggja það að þessar umhyggjutilfinningar bindi karlinn við spúsu sína verður hún að hafa svipuð krúttelement og ungviðið - hún þarf að vera babe. Hún þarf að vera bambi

Því minni feldur, því meira beib.

Þetta hefur valdið því að minnst loðnu konurnar urðu ofan á kjötmarkaðnum til forna. Og sökum þess að börnin erfa gen beggja foreldra töpuðu karlarnir líka feldinum smám saman. Þeir eru þó enn dálítið loðnari en konurnar, enda ljóst að konur leita upp til hópa eftir þveröfugu yfirbragði í fari karla. Loðnar og sterkar górillur eru líklegri til að vernda þær og færa björg í bú.


Blogg þetta er fullkominn heilaspuni. Vinsamlegast skoðið þetta ekki sem kennslustund í dýra- eða mannfræði.

Birgir Baldursson kl. 02:06 - efni: almennur heilaspuni - vísanir (0)



Viðbætur
Góð saga - það þarf ekki að vera að þetta sé eintómur heilaspuni hjá þér. En málið gæti þó vel verið snúnara - spurningin um það af hverju okkur þróaðist hárleysi gæti t.d. verið skyld þeirri um það af hverju okkur þróaðist haka.

Kannski er þér kunnugt um það sem kallað er [i]neoteny[/i], það er, þegar ákveðnir líkamlegir eiginleikar stirðna í bernsku ástandi, taka ekki út fullan þroska (nátengt "arrested development"). Sú er t.d. raunin með tennurnar í okkur og tannstæðin - þroskun þeirra er hægari en gerist í öðrum mannöpum, vöxtur þeirra framávið er miklu hægari. Kannski vegna aðlögunar að breyttum fæðuvenjum. En neðri kjálkinn tekur út þroskann að hluta til að öðru leyti, og heldur áfram að vaxa. Þess vegna fáum við höku - ekki vegna þess að valið hafi verið fyrir henni, heldur birtist hún sem aukaafurð annars eiginleika sem er undir náttúrulegu vali (eða öðru þróunarfræðilegu ferli).

Kannski útúrdúr, en ég vildi bara benda á að þótt sagan sé góð (og ekki ósennileg), þá er hún samt vitaskuld bara það: saga um það sem gæti hafa gerst, eins og "just-so" saga Kiplings um það hvernig fíllinn fékk ranann sinn. Það er gaman að velta fyrir sér hvernig við misstum hárið fyrir tilstilli náttúrulegs vals (og mér finnst skýring náskyld þinni t.d. mjög líkleg á því afhverju konur hafa brjóst, ólíkt öðrum apynjum), en það má ekki gleyma að skýringin gæti fullteins haft að gera með orsakir sem tengjast náttúrulegu vali sáralítið.

Hr. Pez 08.12.2004 klukkan 10:34#

- - - 0 0 0 - - -
Hafið þið nokkuð séð Karl Marx? Við fórum á Dillon saman og svo hvarf hann bara. Hann skuldar mér enn fyrir leigubílnum.

Hr. Engels 09.12.2004 klukkan 13:52#

- - - 0 0 0 - - -
- eg tok einmitt eftir því á sama tíma hvað sonur Sveinbergs og Sveinfríðar var loðinn á neðri kjúkum

hc 28.12.2004 klukkan 08:56#

- - - 0 0 0 - - -
Já, hann böstar okkur félagana í feldburði. Helst að fornvinur hans KJG hafi slegið honum við, enda kallaður Loðinbarði.

Birgir Baldursson 29.12.2004 klukkan 01:00#

- - - 0 0 0 - - -

Prjónaðu við









Muna þig?






birgir.com