Laugardagur 11. desember 2004

Slepja

Veit ekki af hverju ég er alltaf að hlusta á þessa þætti Þórhalls Heimissonar, Hamingjuleitina. Þetta drasl myndi sóma sér ágætlega á Ómega. Væmni og kristileg slepja sem hleypir í mig illu blóði. Hvað er þetta með Ríkisútvarpið og skefjalausan kristilegan áróður? Og af hverju hefur dagskrárstjóri þessarar stofnunar ekki látið svo lítið að svara umsókninni sem ég sendi honum um að gera þætti um efahyggju?

Í skeytinu til hans reifaði ég hugsanlegt efni fyrstu fimm þáttanna:

  1. Siðferði og efahyggja. Eru trúleysingjar siðlausir? Fær siðferði þrifst án trúar? Hvaða lífsgildi aðhyllast þeir sem ekki gera ráð fyrir yfirnáttúru? Hugmyndir byggðar á húmanisma og fagurhyggju skoðaðar.

  2. Er trúin smitsjúkdómur? Er hægt að tala um hugarvírus eða kannski kerfisvillu í þessu samhengi? Ganga trúartískubylgjur yfir á svipaðan hátt og fatatíska eða stjórnmálaviðhorf? Hugmyndir þróunarlíffræðingsins Richard Dawkins um meme skoðaðar.

  3. Hafa miðlar, heilarar og kraftaverkalækningamenn rétt fyrir sér? Er einhver yfirnáttúra til í alvörunni? Er þörf fyrir hana í heimsmynd okkar? Byggja hugmyndir manna um skapara á þekkingu eða fáfræði? Störf James Randi skoðuð.

  4. Hvað er athugavert við námsskrá grunnskólanna? Er trúboð stundað í skólum? Væri heppilegra að kenna gagnrýna hugsun, heimspekilegar vangaveltur og málefnalega umræðu? Hugmyndir Sigurðar Hólm Gunnarssonar, varaformanns Siðmenntar, skoðaðar og ef til vill rætt við menntamálaráðherra, eða Björn Bjarnason, fyrrum menntamálaráðherra.

  5. Hver verður staða trúarinnar í fjölþjóðlegu samfélagi framtíðarinnar? Mun niðurstaðan verða „jákvætt“ eða „neikvætt“ trúfrelsi? Hvað tákna þessi hugtök? Er þjóðkirkjan dæmd til að yfirgefa ríkisjötuna?

Það er kominn tími til að þessi klerkayfirgangur fái smávegis mótvægi.

Birgir Baldursson kl. 15:16 - efni: trúmál - vísanir (0)



Viðbætur
Ætli nú ríki þröngsýnni stefna hjá RÚV en þegar langafi minn hélt erindi um trú og trúleysi í útvarpinu og komst að m.a. á þeim forsendum að trúboðið fengi svo mikinn tíma?

Ingibjörg Stefánsdóttir 11.12.2004 klukkan 18:08#

- - - 0 0 0 - - -
Hvernig var það, Ingibjörg, áttu ekki þetta erindi prentað? Hvað hét það aftur?

Birgir Baldursson 11.12.2004 klukkan 18:40#

- - - 0 0 0 - - -
Kannski eru það umbúðirnar frekar en innihaldið. RUV er með ákaflega hráa og einfalda dramatúrgíu í mestallri dagskránni. Þetta er að megni til svona míkrófónstatívviðtöl með jingles á milli. Það er jafnvel enn boðið uppá erindi og útvarpssögu. Auðvitað er það kósí að tíminn standi einhvers staðar í stað, en svona er þetta yfir alla línuna hjæa stofnuninni.
Uppsettið hjá þér á þáttunum er of hart - boðskapurinn of sýnilegur. Alltaf best að miðla upplýsingum/boðskap/áróðri óbeint. Þannig að þetta verði svona "aha!"-upplifun fyrir hlustandann.

Gisli 13.12.2004 klukkan 10:15#

- - - 0 0 0 - - -
Hm ... rambaði inn á þennan vef þegar ég gúglaði trúmál. Trúleysingi ... ágætt. Ljómandi. Ekki varst þú einn af þátttakendunum í þessari meinfyndu trúleysisdeilu sem ég frétti af síðustu daga, einn af þeim sem móðgaðist út í Þráin?

Í öllu falli ... það er dálítið auðvelt að vera argur trúleysingi þessa dagana, svolítið eins og að sparka í liggjandi menn þar sem Guð hefur látið lítið fyrir sér fara um hríð. Alldauður, er á mönnum að heyra. Hitt væri hugrekki að neita að trúa á peninga, og líkara því sem trúleysi fól í sér fyrir nokkur hundruð árum. Sá sem neitar að taka þátt í hagkerfinu í dag og berst gegn útbreiðslu peningabundinnar hugsunar í skólakerfi myndi sýna nokkra dirfsku og ætti í höggi við raunverulegan og sprelllifandi fjandvin. Ef þig langar í meira stuð, also.

Haukur hvalur 16.12.2004 klukkan 02:43#

- - - 0 0 0 - - -
Hvað er þetta með Ríkisútvarpið Hvað er þetta með Ríkisútvarpið blablabla. Rúv er ekkert nema peningasóunarbatterí sem ætti að vera búið að brenna fyrir löngu síðan. Leggja frekar þá milljarða sem þetta batterí kostar, í heilbrigðisþjónustu eða í að leggja vegi. Hananú

spritti 20.12.2004 klukkan 14:13#

- - - 0 0 0 - - -
Eða sjá til þess að þessi stofnun verði vettvangur skoðanaskipta um öll viðhorf samfélagsins, en sé ekki einsleit málpípa Þjóðkirkjunnar eins og nú er.

Ríkisútvarpið er tímaskekkja, en það má laga það. Alger óþarfi að henda því.

Birgir Baldursson 20.12.2004 klukkan 14:38#

- - - 0 0 0 - - -
Erindið hét held ég: Um trú og trúleysi eða eitthvað í þá áttina. Ég á það ekki en skal athuga hvort það er til heima hjá pabba og mönmmu.

Gleðileg jól :)
Ingibjörg

Ingibjörg Stefánsdóttir 24.12.2004 klukkan 16:51#

- - - 0 0 0 - - -

Prjónaðu við









Muna þig?






birgir.com