Mánudagur 03. janúar 2005

Með ráðum gert?

Kallið mig nojaðan, en mér finnst ekki einleikið hvernig þessi símafyrirtæki gera stöðugt mistök þegar þau rukka mann.

Ég hef lengi verið með Símavina-GSM áskrift hjá OgVodafone og datt í hug í gær að fara á vefinn þeirra til að sjá hvern ég hefði valið sem símavin þegar ég keypti áskriftina. Ég varð furðu lostinn að sjá að símavinur minn var einhver maður í Hafnarfirði sem ég kannast ekki rassgat við. Alveg er ég viss um að ekki valdi ég hann í upphafi, heldur sennilega Gumma P. eða SSSka.

Gæti verið að staffið hjá OgVodafone fái fyrirmæli um að skrá svona hluti vitlaust til að fyrirtækið þurfi ekki að veita ókeypis símtöl, eða er staffið bara svona heilaskemmt?

Ég keypti mér ADSL-þjónustu hjá sama fyrirtæki í haust. Leiðin sem ég valdi hljóðar upp á 1 GB gagnamagn, enda enginn heimasími tengdur línunni sem þetta streymir eftir. Samt fékk ég rukkun eins og ég hefði keypt 100 MB þjónustu og því var allt umfram það rukkað sem umfram gagnamagn.

Ég hringdi strax í þá þegar mér varð þetta ljóst og benti á mistökin. Núna kemur svo reikningur þar sem búið er að leiðrétta þetta með gagnamagnið nema hvað nú er ég að borga bæði fyrir 1 GB magn OG 100 MB magn. Og allt umfram þessi 100 megabæt eru rukkuð sem umfram gagnamagn.

Hvað er er að gerast á þessum bæ?

Í vor og sumar, þegar Jóka ehf var með ADSL-tengingu hjá símanum keyptum við 500 MB gagnamagn, en vorum samt rukkaðir eins og um 100 MB væri að ræða. Ætli það sé stefna hjá báðum þessum fyrirtækjum að rukka vitlaust í trausti þess að aðeins hluti kúnnanna taki eftir því?

Gott fólk, skoðið símreikningana ykkar og gangið úr skugga um að þið séuð að borga fyrir það sem um var samið.

Birgir Baldursson kl. 18:01 - efni: almennur heilaspuni - vísanir (0)



Viðbætur

Prjónaðu við









Muna þig?






birgir.com