Þriðjudagur 11. janúar 2005

Fjallanöttari

Það hefur alveg farist fyrir á þessu bloggi að tala um fjallamennsku mína, kannski vegna þeirrar undarlegu ákvörðunar að fjalla frekar um málefni en atburðarás lífs míns. En ég er semsagt fjallageit, eins og sjá má á færslunni hér á undan.

Ég er í gönguklúbbnum Blómey. Félagsskapur sá byrjaði sem rölt upp að rústum torfbæjarins sem þau Óskar og Blómey reistu fyrir ofan Skíðaskálann í Hveradölum. Við drengirnir vorum forvitnir um þetta merkisfólk og urðum að kanna svæðið.

En við komumst á fjallabragðið og gátum ekki hætt. Höfum verið að færast sífellt meira í fang með hverju árinu. Þarsíðasta sumar gengum við t.d. á Hengil og Skjaldbreið, þrátt fyrir að ég væri búsettur í útlöndum og eitthvað önuðu piltarnir að mér fjarverandi líka. Og í fyrra má segja að mestallur fjallahringurinn kringum Reykjavík hafi verið tekinn og Baula þar að auki.

Þetta byrjaði með Akrafjalli um vorið, enda var það bæjarfjall mitt það misserið. Ég var mikið búinn að horfa þangað uppeftir og líka á Heiðarhornið á Skarðsheiði. Það tók ég síðan einn í júlí, lagði upp klukkan 18 og var kominn niður klukkan 01. Fór reyndar ekki alveg upp á blátoppinn, enda hvasst og ég lofthræddur.

Stefni á Heiðarhorn aftur í sumar, og Skessuhorn líka.

En við fórum semsagt líka á Hafnarfjall, Þyril, Móskarðshnjúka tvisvar, Helgafellin í Mosó og Hafnarfirði, Vífilsfell, Ármannsfell og Trölladyngju.

Fjallgöngukikkið er unaðslegt, varla hægt að hugsa sér betra sport. Ætli Hekla sé ekki fljótlega á dagskrá, Botnsúlur, Skjaldbreiður aftur (ekkert skyggni síðast), Ármannsfell aftur líka, Hengillinn líka og ég veit ekki hvað. Mesta tilhlökkunin verður þó Skessuhorn sem lítur út eins og sérhönnuð dauðagildra. En það er víst ekkert svo svakalega erfitt.

Ef ég sigra Skessuhorn setj ég stefnuna á Kirkjufell á Snæfellsnesi. Og kannski maður noti þá ferðina og tölti upp á Snæfellsjökul, en hann rigsaði maður fyrir aldarfjórðungi á strigaskóm.

Þessi baktería er komin til að vera.

Birgir Baldursson kl. 02:58 - efni: almennur heilaspuni - vísanir (0)



Viðbætur
Takk fyrir góða tjáningu með Blómey, sem í mínum huga var,er og verður alltaf gönguhópur en ekki gönguklúbbur.

Hópur í mínum huga er t.d = hópur fólks á ferð, hreyfing,áreynsla,erfiði,sviti,toppnum náð og viti menn endrofín kikk eða bara natúral alsæla.

Klúbbur í mínum huga er t.d = fólk í kyrrstöðu, jafnvel sitjandi við borð innandyra, fæst við tómstundir eða gerandi góðverk í þágu mannúðarmála,frímerkjaklúbbur,talstöðvaklúbbur eða lionsklúbbur, jafnvel matagerðarklúbbur. Klúbbur svona meira innanbæjar og innanhúss.

Kannski má endalaust vega og meta eða rökræða og deila um rétta merkingu þessara hugtaka,jafnvel innan þess góða vinahóps sem Blómey er mun jafnvel aldrei nást niðurstaða í það hvort Blómey sé hópur eða klúbbur, kannski er ágætt að líta sem svo á það að Blómey sé bara hvorug tveggja,það er að segja bæði hópur og klúbbur, en í mínum huga er Blómey gönguhópur sem í vor verður 5 ára gamall.

ss ska 12.01.2005 klukkan 19:06#

- - - 0 0 0 - - -

Prjónaðu við









Muna þig?






birgir.com