Miðvikudagur 19. janúar 2005

Sukk?

Fyrir allnokkrum árum lá Hjálparstofnun kirkjunnar undir ámæli fyrir að bruðla með söfnunarfé handa hungruðum heimi. Pétur Sigurgeirsson og kumpánar skelltu sér t.d. til Póllands fyrir þann pening og voru fyrir bragðið kallaðir hungurmorðingjar af Helga Hóseassyni.

Í dag fletti ég Mogganum og hvað sé ég? Heilsíðuauglýsingu frá Neyðarhjálp úr norðri þar sem fólki er þakkaður stuðningurinn. Ég ætla rétt að vona að Mogginn hafi látið hjálpinni þessa síðu eftir endurgjaldslaust, því ekki vil ég sjá peninginn sem ég setti í aðstoðina enda sem auglýsingatekjur Moggans.

Þótt vel hafi safnast afsakar það ekki peningasukk.

Birgir Baldursson kl. 13:18 - efni: almennur heilaspuni - vísanir (0)



Viðbætur
Þetta er nú efni í blaðagrein. Hvernig væri að hringja í Moggann og spyrja bara?

Vésteinn 19.01.2005 klukkan 15:31#

- - - 0 0 0 - - -
úfff, ég vona líka að hún hafi verið gefins en ég er því miður ekki bjartsýnn...

gunnar 19.01.2005 klukkan 18:25#

- - - 0 0 0 - - -

Prjónaðu við









Muna þig?






birgir.com