Tröll í eigin ranni
Í þessari færslu hefur guðfræðingurinn Árni Svanur brugðið á það ráð að tækla ummæli okkar Matta með því að strika yfir þau og nú síðast henda þeim bara út.
Umræðuefnið er aðkoma Þjóðkirkjunnar að málefnum barna. Við Matti bendum auðvitað á að bákn uppfullt af hindurvitnum eigi ekkert erindi í slíkt starf, en um leið og prestar þess séu tilbúnir að varpa guðaruglinu á dyr og gerast sekkjúlar manngildisstofnun horfi málið öðru vísi við.
Eitthvað fer þessi málflutningur illa í Árna greyið, því hann sakar okkur um tröllsskap og eyðir skeytum okkar. Í hverju tröllsskapurinn felst fæ ég ekki séð, en þetta innlegg hans sjálfs finnst mér lykta af slíku athæfi svo ekki sé meira sagt:
Tröllin mega halda sig annars staðar með málflutning sinn, þau eru ekki velkomin hér. Umburðarlyndi mitt gagnvart þessum skætingi er á þrotum.
Við þetta vil ég bæta að þessi þráður er ekki ætlaður til umfjöllunar um ummælastefnu mína. Né um nokkuð annað en þetta átak. Sleggjudóma skal jafnframt skilja eftir við útidyrnar.
Með öðrum orðum: Þeir sem hegða sér eins og fullorðnir menn í agaðri og skynsamlegri samræðu eru velkomnir. Þeir sem vilja nota þetta sem vettvang til að ata aðra aur, vera með leiðindi og stæla, afhjúpa fordóma sína í garð annarra (svo fátt eitt sé nefnt) eru ekki velkomnir.
Það er enginn skætingur í orðum okkar Matta. Hins vegar mætti flokka það undir skæting að kalla okkur tröll. Á ekki að skilja sleggjudómana eftir við útidyrnar?
Árni hegðar sér ekki eins og agaður maður í skynsamlegri samræðu þegar hann strikar út heilu og hálfu skeytin og eyðir svo öllum tilsvörum við þetta upphlaup. Hann atar okkur Matta síðan aur þegar hann kallar okkur tröll, er með leiðindi og stæla (eyðir út tilsvörum) og afhjúpar fordóma sína til málflutnings okkar.
Og nú er hann búinn að loka á frekari athugasemdir. Mjög málefnalegt, eða þannig.
Carlos: Ég var hvergi með dónaskap. Taktu eftir hvað það er sem Árni strikaði út í málflutiningi mínum. Ég kallaði kristindóminn hindurvitni. Þið eigið óskaplega erfitt með að þola það og hentugast að vísa því bara á bug sem dónaskap.
Og það er athyglisvert að þú þurfir að draga fram ummæli annarsstaðar frá til að rökstyðja mál þitt. Sýndu mér frekar fram á hvað skorti upp á málefnaleika í þeim kommentum sem komu undir sjálfa færsluna.
Árni Svanur: Nei, þarna var ekki allt komið fram. Það er argasta ókurteisi að gefa mönnum ekki tækifæri til að svara fyrir sig. Það er manni ekki leyft heldur er maður bara sleginn í jörðina.
Kannski nazistaflokkslíking Matta sé bara hárrétt og fullkomlega málefnaleg eftir allt saman. Þessir menn haga sér í það minnsta þannig.
Þetta eru ofbeldismenn.
Birgir Baldursson 29.01.2005 klukkan 11:52#

