Þriðjudagur 01. mars 2005

Ofsóttur af DV

Já, DV er búið að hringja tvisvar í dag. Í fyrra skiptið átti ég að upplýsa þjóðina um hvernig ég hleypi andans-bykkjunni á skeið. Og núna áðan vildi blaðamaður fá að vita allt um Geocaching.

Gæti tengst því að félagi Gunni vinnur á sneplinum. Svo var mynd af okkur Guðna Má Henningssyni þarna í gær. Oft þarf ekki meira. Ætli ég verði farinn að velja verst klæddu konur ársins þarna áður en yfir lýkur?

Birgir Baldursson kl. 13:25 - efni: almennur heilaspuni - vísanir (0)



Viðbætur
Já einmitt, hverjar eru verst klæddu konurnar?

Gunni 03.03.2005 klukkan 16:00#

- - - 0 0 0 - - -
Er ekki sívinsælt að segja Kolbrún Bergþórs?

Birgir Baldursson 10.03.2005 klukkan 02:54#

- - - 0 0 0 - - -

Prjónaðu við









Muna þig?






birgir.com