Fimmtudagur 03. mars 2005

Blindur

Gleraugun mín hrukku í sundur á nefinu á mér áðan. Ég er að reyna að líma þau saman með ofurlími en ekkert gengur.

Þetta veldur því að ég sé ekki glóru. Til að lesa á tölvuskjáinn minn þarf ég að troða fartölvunni undir hökuna. Hvernig haldið þið að það sé að skrifa texta í þeirri stellingu?

Ég er nú samt að því.

held að það þýði ekkert fyrir fólk að reyna að skrifast á við mig á MSN, það tekur svo langan tíma að koma frá sér einni setningu í þessari stellingu.

Mér líst ekki á blikuna. Á ekki fyrir nýjum gleraugum og ekki að sjá að þessum verði reddað. Best að maður fari samt með þau til fagmanns í fyrramálið og sjái hvað hann segi. Svo verður maður bara blindur, en fallegur, meðan beðið er.

Birgir Baldursson kl. 21:14 - efni: almennur heilaspuni - vísanir (0)



Viðbætur
Öppdeit: Fann gamla linsuboxið mitt og er kominn með linsu í vinstra auga. Ætlaði aldrei að geta opnað hólfin, en í ljós kom að vökvinn í því hægra var uppþornaður. Ég á ekki vökva, en fyllti hólfið með saltvatni í þeirri von að linsan verði nothæf áður en langt um líður.

Verð væntanlega alsjáandi OG fallegur á morgun :)

Birgir Baldursson 03.03.2005 klukkan 21:26#

- - - 0 0 0 - - -
Maður fær kómíska sýn af þér í líki Mr. Magú að vandræðast um loftinu á þeirri miklu.

gummi p 04.03.2005 klukkan 18:38#

- - - 0 0 0 - - -
Mannstu hvað þeir Fjólar, Hannes og Magnús voru flottir í minningunni með bítræn risagleraugu á stærð við stofuglugga með svörtum plastumgjörðum, gleraugnahúmor semog kragahúmor stendur alltaf fyrir sínu.

SS SKA 05.03.2005 klukkan 00:32#

- - - 0 0 0 - - -
Já, kannski maður ætti að fá sér slík gleraugu. Þau eru algert bít.

Birgir Baldursson 05.03.2005 klukkan 01:58#

- - - 0 0 0 - - -

Prjónaðu við









Muna þig?






birgir.com