Borðbænin eina
Ætli ég hafi ekki verið á 9. árinu. Sumar og mamma og litla systir nýkomnar frá Svíþjóð.
Þar höfðu þær verið í heimsókn hjá vinafólki sem hafði áður búið í Hlégerðinu. Og úti í Svíþjóð hafði þetta fólk orðið Vottar Jehova.
Og mamma, eftir að hafa tekið inn trúræknina hjá vinum sínum þarna úti ákvað að nú skyldu teknar upp nýjar venjur á heimilinu. Við kvöldverðarborðið hvað hún upp úr með að nú ættum við öll að sameinast í borðbæn, áður en maturinn yrði snæddur.
Hún lét okkur lúta höfði, spenna greipar og loka augum. Byrjaði svo með eitthvað svona: „Góð guð, þakka þér fyrir þennan mat sem þú hefur fært og borðið okkar...“
Ég fór allur hjá mér, því þetta var svo asnalegt. Og ég gat ómögulega haldið augunum lokuðum, heldur varð að kíkja á hin þar sem þau sátu í þessari afkáralegu stellingu. Og auðvitað varð það til þess að augu okkar bróður míns mættust.
Ekki þarf að spyrja að því, við sprungum báðir úr hlátri og gersamlega emjuðum og engdust góða stund. Mamma varð stórhneyksluð á okkur og í raun alveg eyðilögð. Kannski fattaði hún sjálf hvað þetta var bjánalegt, því hún reyndi þetta aldrei aftur.
Guðhræðsla þín hjá Afa Toyota á eftir að hjálpa þér síðar Skrudda. Páll Unnarsson 10.03.2005 klukkan 23:06#
Afi Toyota var næstum því búinn að drepa mig pínu litla og mömmu einu sinni. Þá var ekki tími öryggisbeltaskyldunnar. Mamma fékk að fljóta með honum til Reykjavíkur og á leiðinni snarnelgdi karlinn niður svo mamma fauk í bílrúðuna. Hann gleymdi nefnilega að fara með ferðabænina! Það er gott að það eru til ferðabænalímmiðar í bílana í dag. Vonandi nægja þeir fólki.
Skrudda 13.03.2005 klukkan 21:21#Ég hélt að heiðingjar væru lausir við fordóma!!
Alla vega heyrist mér það á lesningu minni bæði
hér og annarstaðar þar sem fólk sem telur sig
vera trúleysingar, svo farið þið í feita flækju
þegar fólk fer með einhverja borðbæn. hatrist hægri
vinstri.........sjáið rautt....
Skrudda tala um einhvern ógeðslegan fíladelfíukall..... fordómar.is
góðar stundir og gleðilega páska.
kv Jóka Jóka 26.03.2005 klukkan 12:02#



Svo allar ógeðslegu myndirnar sem þau afi og amma áttu. Englar með rautt í kringum augnum sveimandi yfir fólki með rautt í kringum augun. Mikið fannst mér gott að komast til mömmu eftir heimsóknir til þeirra. Samt voru þau voða góð en allt útbýjað í krípí Jesúdóti! Ég meikaði ekki svona samfélagsfrávik sem barn.
Skrudda 09.03.2005 klukkan 20:47#