Skapti
Skapti Ólafsson æfði með okkur Þórði Högna og Edda Lár í morgun, en meiningin er að þessi hópur taki nokkra vel valda slagara á Kaffi Rósenberg á fimmtudagskvöld.
Við Skapti höfum ekki áður staðið á sviði saman, en þekkst lengi. Eins og aðrir trommarar af eldri kynslóðinni hefur hann alltaf heillað mig með períódískri nálgun við trommusettið, nálgun sem er fullkomlega laus við klikktrakk-þjálfun og slík leiðindi. Við þessir yngri sem eytt höfum stórum hluta stúdíóviðveru okkar með vélræna congatrommu í eyrunum getum aldrei náð þessu fíli sem þeir gömlu hafa.
En Skapti verður auðvitað söngvari þarna á fimmtudagskvöldið. Hann er einn af fyrstu rokksöngvurum þjóðarinnar og sá maður sem á fyrsta rokklagið á íslenskri plötu, að því er manni skilst. Og flottur er hann enn, drynjandi djúpraddaður og grúví.
Hvet ykkur til að koma og sjá þann gamla. Þetta er í raun stórviðburður, því hann er að mestu hættur að troða upp opinberlega. Við byrjum klukkan hálftíu og það kostar 500 kall inn.



Skrudda 25.03.2005 klukkan 00:38#