Nirvana
Þið þekkið öll sjónvarpsauglýsinguna um klósettlyktarefnið Closan Flush (eða er það Close & Flush?). Þar segir góðleg kvenrödd ökkur frá þessari dásemd og í bakgrunni mallar léttlynd tónlist.
Kella lýkur sér af og músíkin klárast... En þá allt í einu tilkynnir hún að Closan Flush fáist líka sem salernishreinsilögur. Og músíkin sem fer þá í gang, 4 nótur spilaðar á fornan hljóðgerfil, nær gersamlega að koma mér í dásamlegt leiðsluástand, sem ég get látið endast næstu mínútuna.
Það er eitthvað við sándið í þessu örstutta stefi, þetta analog synthasánd frá því fyrir 40 árum eða eitthvað sem hristir upp í einhverjum kenndum í mér, kenndum sem liggja rótfastar djúpt í undirmeðvitundinni. Kannski helgast þetta af því að þessi gerflahljóð hafa verið algeng í sjónvarpi í frumbernsku minni og það þarf ekki meira en 4 nótur til að opna upp á gátt þá gullkistu. Þetta er frumbernskufílingur, ættaður frá þeim tíma að maður hugsaði ekki heldur bara upplifði.
Þetta er hin góða tilfinning sem Zen-búddismi gengur út á að höndla. Þið þarna Zen-búddistar - lausnin á Nirvana er fundin: Closan Flush!
Birgir Baldursson kl. 23:36
-
efni:
tónlist
-
Birgir! Þú skrifar alltof sjalda á síðuna! Þetta er ein besta bloggsíða sem skrifuð er á móðurmálinu. Sérstaklega þegar þú tekur nöfnin úr beknum fyrir. Algjör snilld, þú ættir að gera meira af því að skrifa. Bíð eftir bók eftir þig!!!
- - - 0 0 0 - - -
Þakka hrósið :D Ég held ég sé aftur að skrölta í gang. Klára nöfnin í kladdanum á næstu dögum.
En það verður langt í bókina, ef hún kemur þá nokkurntíma.
- - - 0 0 0 - - -
Ég skal fjármagna bókina þína!! Þú ættir að huga að bók sem fyrst. Ég hugsa að það séu margir sem væru til í að gefa þig út!! Þú ert helvíti góður Birgir.
- - - 0 0 0 - - -
Iss, ég er skítsæmilegur.
Þessi er mér fremri á ritvellinum. Stökktu á hana.
- - - 0 0 0 - - -
Birgir, þú átt ekki að vera svona hógvær. Þú ert fjandanum betri. Ættir að vera að skrifa í blöðin frekar en "airhead" eins og Reynir Traustason. Afhverju ert þú ekki blaðamaður??? Þú ættir frekar heima á þeim vettvangi heldur en flestir þeir sem vinna á 365-prentmiðlum!! Þú rúlar Birgir!!
- - - 0 0 0 - - -
Las Skruddu. Fín Síða. En þú ert alveg sér á báti. Hef lesið mikið af þessu netdóti, og þú ert alveg sér á báti. Ert ekkert síðri penni heldur en trommari. Þú þarft að láta ljós þitt skína á öðrum stöðum heldur en á vantrú.net. Þú ert það góður. Hefur svo margt annað fram að færa. :)
- - - 0 0 0 - - -
Takk fyrir spjallið Biggi!!
- - - 0 0 0 - - -
Sæll Ívar!
Hérna er linkur í bloggið um Helga Hós, þetta sem ég minntist á í símtalinu:
Takk fyrir skemmtilegt spjall.
- - - 0 0 0 - - -
roðn...
Biggi þú ert ekkert síðri penni en ég. Skrifar líka allt öðruvísi. Svo hefuru skrifað svo mikið. Mannstu. Þú ert ekki ennþá búinn að losa þig við Jesúsúpuna sem þig dreymdi fyrir ótrúlega löngu síðan.
- - - 0 0 0 - - -
Ahh, Jesúsúpan. Verst að það er svo langt síðan mig dreymdi hana að ég man eiginlega ekkert eftir draumnum. Nema að þetta gerðist um borð í sjóræningjaskipi sem lá við festar og var búið að breyta í veitingahús. Þetta var pastasúpa, eins konar stafasúpa, nema hvað pastað var mótað eins og litlir Jesúsar. Pönsið í draumnum man ég ekki.
- - - 0 0 0 - - -
Prjónaðu við