Föstudagur 15. apríl 2005

Fréttaflutningur

Lúðvík Bergvinsson móðgaði forseta Alþingis í fyrradag, þegar hann greip fram í fyrir honum og hundskammaði. Bæði RÚV og Stöð 2 fluttu af þessu fréttir í gær.

Og sá fréttaflutningur var merkilegur. Hvorug stöðin ræddi við Lúðvík, en báðar leyfðu þær Halldóri Blöndal að úttala sig um málið, eftir að hafa sýnt frá atvikinu. Og hvorug stöðin spurði Halldór hvort gagnrýni Lúðvíks geti verið réttmæt. Af hverju var honum hlíft við því?

Birgir Baldursson kl. 13:28 - efni: stjórnmál -



Viðbætur
Reyndar var rætt við einhver talsmann Samfylkingar í sjónvarpsfréttum ríkissjónvarps í gærkvöldi.

En annars er þetta statusinn á fréttamennsku á Íslandi í dag. Eitt kvöldið er tekið viðtal við karl sem segir að Alþingishúsið sé bleikt, næsta kvöld tekið viðtal við konu sem segir að það sé gult en aldrei farið á staðinn og tékkað á því hvernig húsið sé á litinn! Íslensk fréttamennska er engin fréttamennska, heldur vettvangur fyrir pólitíkusa til að tjá skoðanir sínar. Það er ekki fyrr en málið snýst um hagsmuni fréttamanna sem þeir fara að kafa ofan í málið sýnist mér.

Að sjálfsögðu eru undantekningar en oftast er þetta svona.

Matti Á. 15.04.2005 klukkan 14:08#

- - - 0 0 0 - - -
Það var kominn tími til að einhver skammaði Halldór.

Vésteinn 20.04.2005 klukkan 19:32#

- - - 0 0 0 - - -

Prjónaðu við









Muna þig?






birgir.com