Miðvikudagur 20. apríl 2005

Skrum heiladauðans

Sjónvarpsauglýsing frá Rúmfatalagernum. Af hverju í ósköpunum þarf sá sem les inn á þetta að vera með þenna fáránlega æsing? Halda menn að við séum eitthvað móttækilegri fyrir svona fíflaskap? Ég hef tilhneigingu til að lækka í svona, svo ekki ná þeir til mín.

Þetta er sama taktík og hjá íþróttafréttamönnum. Á undan þeim lesa rólegar raddir fréttir af hörmungum og vá, en svo koma þeir eins og gjammandi óðir hundar að segja okkur frá einhverju jafn hundómerkilegu og markafjölda hjá einhverju sveittu fólki sem er að leika sér.

Algerlega fáránlegt.

Birgir Baldursson kl. 19:03 - efni: almennur heilaspuni -



Viðbætur
Jú, sjáðu til. Auglýsingaverð á sjónvarpsauglýsingu hjá RUV er, pr. sek. og án vsk, frá 1000-6000 kr. Svo það er bara að hespa þessu af...

Gisli 21.04.2005 klukkan 11:14#

- - - 0 0 0 - - -
Bregst ekki að alltaf þegar ég gagnrýni lákúru í menningu okkar fara menn að tala um peninga.

Birgir Baldursson 21.04.2005 klukkan 15:03#

- - - 0 0 0 - - -

Prjónaðu við









Muna þig?






birgir.com