Sunnudagur 24. apríl 2005

Á öldurhúsi

Hún: [tekin og hrjúf, gömul fyrir aldur fram, pikkar í mig þar sem hún situr á næsta borði. Bendir mér á manninn sem situr andspænis henni í hrókasamræðum við annan mann]: Sjáðu þennan mann þarna, finnst þér þetta vera mikil karlmennska?

Ég [virði fyrir mér manninn, rauðhærðan og mjósleginn]: Sérðu það ekki að þetta er ósvikinn karlmaður? Hann er reyndar svolítið kvenlegur.

Hún [kinkar ánægð kolli]: Þetta er konukarl.

Ég [sé það besta í stöðunni að keyra mig upp í „þú ert gömul sál“ gírinn]: Það skína úr augum hans gömul sambönd. Brostnar vonir, maðurinn er bara aumur fyrir. En taktu eftir því hvað það stafar af honum mikilli fegurð, þrátt fyrir þessa aumu kviku. Geturðu séð það? Fegurðin þrífst á mörgum sviðum.

Hún: Já, ég sé það. [mildast í svipnum].

Ég: Byggirðu siðferði þitt á fegurðinni?

Hún: Ha?

Ég: Byggirðu siðferði þitt á fegurðarskyninu eða einhverju öðru? Varla ertu siðblind?

Hún: Jú, ég er siðblind.

Ég: Nei, þú ert ekki siðblind. Ég sé það á þér að þú ert siðferðisvera. Spurningin er bara sú á hverju þú byggir siðferði þitt. Siðferðisþroski manneskjunnar skiptist í þrjú stig, lægsta stigið er reglusiðferðið. Þar eru trúmennirnir og lítilsiglt fólk. Næsta stig fyrir ofan er reynslusiðferðið. Þar eru t.d. siðrænir húmanistar og fólk með háan félagsþroska. Efsta stigið er svo fagurhyggjan, það að byggja siðferðismat sitt á fegurðarskyninu. Á hvaða þrepi ert þú? Yfirleitt sér maður þetta í augunum á fólki, en í þínu tilviki er ég ekki viss, það hvílir yfir þessu einhver þoka.

Hún: Ég veit það ekki. Nú ertu að segja mér eitthvað sem ég hef ekki heyrt áður.

Ég [gömlusálargírinn kikkar fastar inn]: Mér sýnist þú hafa tafið fyrir siðferðisþroska þínum. Þú hefur farið dálítið fram úr sjálfri þér í lífinu. Ég held að best væri fyrir þig að taka upp reglusamara líf. Áttu börn?

Hún: Nei.

Ég: Þú þarft að eignast barn. Ég sé að þú hefur ekki fengið uppfyllingu ástarinnar. Og þá er ég ekki að tala um sex, heldur kærleika. Það besta sem þú getur gert er að ala upp barn og umvefja það kærleika þínum.

Hún: Nei, mig langar ekkert í barn.

Ég: Jú, þú þarft að eignast barn og beina öllum þessum kærleika sem býr innra með þér í almennilegan farveg.

Hún: Ég get ekki átt börn.

Ég: Nú er það ekki?

Hún: Nei, maður reyndi það á sínum tíma, en ég fékk það staðfest að ég gæti ekki eignast börn.

Ég: Hefurðu hugleitt ættleiðingu? Auðvitað viltu eiga barn. Hugsaðu þér að taka að þér lítið barn og umvefja það ástúð.

Hún [tóm í svipnum] Komm on. Ég er róni.

Ég: Róni? Nei, þú ert sko ekki róni. Þú heldur það bara. Þú ert bara farin fram úr sjálfri þér í lífinu. Það sem þú þarft að gera er að koma reglu á lífið og ala upp barn.

Hún: Ég hef enga þörf fyrir barn. Það eina vonda við að eiga ekki barn er það að það er enginn til að annast mann þegar maður er orðinn gamall.

Ég: Þarftu ekki barn? Ójú. Þú heldur þetta bara. Þú getur auðveldlega unnið þig upp úr núverandi ástandi. Ég skora á þig að gera það.

Hún [von kviknuð í augnaráðinu]: Bíddu hérna, ég ætla aðeins á klósettið. Ekki fara, ég ætla að labba með þér út.

Ég [laumast út um leið og klósetthurðin lokast á eftir henni. Tek strikið heim á leið í björtum sunnudagsmorgninum].


Nýjasta sportið mitt á öldurhúsum er að sá fræjum.

Birgir Baldursson kl. 06:56 - efni: almennur heilaspuni -



Viðbætur
Frábært svar:"Nei ég er róni". Hehehehe. Ekki alveg það sem maður sér fyrir sér koma út úr konu munni.
Konur geta einhvern veginn ekki verið rónar.Mér finnst það bara af því að orðið er karlkyns.
Rónan og róninn...hmm

skrudda 24.04.2005 klukkan 21:29#

- - - 0 0 0 - - -
Hvar ertu eiginlega farinn að drekka, drengur?

Ingvar Valgeirsson 26.04.2005 klukkan 16:53#

- - - 0 0 0 - - -
22.

Birgir Baldursson 26.04.2005 klukkan 20:23#

- - - 0 0 0 - - -
Þetta er helvíti gott hjá þér! Þetta er texti eins og ég var að tala um! Eitthvað sem maður gleymir sér yfir og les upp til agna. Meira af þessu!!! :)

Ívar M. 26.04.2005 klukkan 20:52#

- - - 0 0 0 - - -

Prjónaðu við









Muna þig?






birgir.com