Eitt enn og tvö
Úff, ég er farinn að reka mig æ ofta á það á síðustu vikum að ég er að klúðra því hvar setja skuli eitt n eða tvö, þrátt fyrir að þekkja reglurnar.
Vona að þetta sé tímabundin sýki.
Birgir Baldursson kl. 11:20
-
efni: tungan
-
Fram í rauðan dauðan eða rauðann dauðann? Nú er dauðinn karlkyns en gildir eitthvað annað hérna eða...? Finnst þetta hálf skrítið með 2 ennum.
halur 07.05.2005 klukkan 18:39#
- - - 0 0 0 - - -
Fram í rauðan dauðann. Rauður er þarna lýsingarorð, rauður um rauðan frá rauðum... en dauðinn náttúrlega nafnorð - hinn dauðinn um hinn dauðann frá hinum dauðanum til hins dauðans.
Birgir Baldursson 07.05.2005 klukkan 19:37#
- - - 0 0 0 - - -
Það var kennt mér íslensku í skóla og það lukkaðist bara býsna vel.
Nýja þolmyndin er einhvern veginn ekki alveg að dansa...finnst mér.
- - - 0 0 0 - - -
Nýja þolmyndin er einhvern veginn ekki alveg að dansa...finnst mér.
Með þökk fyrir ágætis spjall á dögunum.
Sverrir 07.05.2005 klukkan 22:28#Nú hva, finnst þér hún ekki frábærlega krúttleg og kómísk? „Það var handtekið hann af lögregluþjóninum“. Ég elska þetta.
Birgir Baldursson 07.05.2005 klukkan 23:13#
- - - 0 0 0 - - -
Já, og takk fyrir skemmtilegt spjall. Höldum því áfram bráðlega.
Birgir Baldursson 07.05.2005 klukkan 23:14#
- - - 0 0 0 - - -
Þakka þáttöku í kvissinu mínu, hvar þú skoraðir feitt núll. Prestasvörin voru líka sérstaklega ætluð til að villa um fyrir þér!
Ingvar ofsatrúarmaður 09.05.2005 klukkan 13:01#
- - - 0 0 0 - - -
Já, ég veit ósköp lítið um þig annað en að þú ert stundum kallaður sjarmörinn.
Birgir Baldursson 09.05.2005 klukkan 13:11#
- - - 0 0 0 - - -
Þú ættir líka að vita að það nafn á jú fyllilega rétt á sér...
Ingvar ofsatrúarmaður 10.05.2005 klukkan 14:38#
- - - 0 0 0 - - -
Þessi síða er þá alveg málið fyrir þig:
- - - 0 0 0 - - -
http://www.hi.is/~eirikur/stafsreg.htm#17gr
Virðingarfyllst
Stafsetningarnasistinn syngjandi


