Þingsæti
Mér þykir það undarleg tilhögun að þingmaður sem segir sig úr stjórnmálaflokki sínum og gengur í annan skuli halda þingsæti sínu. Auðvitað á varaþingmaður hans að taka sætið í stað þess að þingsætum fjölgi í þeim flokki sem hann gengur til liðs við. Fyrirkomulagið er nú einu sinni þannig að við erum að kjósa flokka en ekki einstaklinga.
En það eina rétta í stöðunni hjá formanni Sjálfstæðisflokks núna, í ljósi fyrr orða hans um að Gunnar Örlygsson ætti að víkja af þingi meðan hann er á skilorði, er að láta hann gera einmitt það. Varaþingmaður Gunnars kæmi þá væntanlega inn í staðinn og Frjálslyndir því áfram jafnmargir á þingi og fyrr.
Birgir Baldursson 12.05.2005 klukkan 01:21#Auðvitað eiga frjálslyndir að fá að halda sínum sætafjölda. Eða er ekki verið að gera atkvæði þeirra sem kusu Frjálslynda að Sjálfstæðisflokksatkvæðum?
Hjalti 12.05.2005 klukkan 02:34#

