Fimmtudagur 19. maí 2005

Svíðingar 4: Sá illa gefni

Af öllum þeim vertum sem ég hef átt lifibrauð mitt undir held ég að ég hafi varla farið verr út úr nokkrum en hinum illa gefna. Og það er saga að segja frá því.

Á árunum kringum aldamótin fékk ég upp í hendurnar ágætt djobb í Perlunni í janúar og febrúar. Þetta voru tríógigg með Eddu Borg og Þóri Baldurssyni, vel greidd og skemmtileg gigg í alla staði. Mig minnir að ég hafi verið búinn að spila tvö ár í röð þarna og kominn í startholurnar með að spila hið þriðja þegar sá illa gefnið kemur til sögunnar.

Gott ef þetta var ekki í upphafi ársins 2000. Og Pálmi Gunnarsson fór af stað með söngvaskemmtun á Kringlukránni. Ég varð að velja á milli hans og Eddu/Þóris sem var erfitt. En þar sem nýsamansett band á vegum Hjartar Howser var búið að fá föst dansíballagigg niðrí bæ ákvað ég að stökkva á Pálma. Giggin hans voru búin fyrr um kvöldið og því myndu þau ekki rekast á við Howserbandið.

Sá illa gefni rak staðinn þar sem Howsersveitin lék. Og eftir þrjú eða fjögur gigg með Pálma kom upp sú staða að hann fór að bóka söngskemmtunina á Akureyri líka. Ég gat auðvitað ekki tekið þau djobb, enda fastur með Howserunum í Reykjavík svo ég stakk upp á því við Pálma að fá Akureyrartrommara til að leysa mig af fyrir norðan. Hann gerði það og bætti um betur með því að láta þann dreng taka Reykjavíkurgiggin líka. Skrýtin ráðstöfun en kannski skiljanleg, því ég gat auðvitað ekki verið 100% hans.

Þetta hafði ekki fyrr gerst, en sá illa gefni segir Howserbandinu fyrirvaralaust upp störfum. Hann hafði álpast inn á staðinn sinn þegar við vorum að renna í fyrsta lag kvöldsins og fannst það ekki nógu skemmtilegt. Þetta var fullkomin geðþóttaákvörðun hjá honum og í bága við allt sem um hafði verið samið.

Og ég var skyndilega í þeirri stöðu að vera alveg tekjulaus og atvinnulaus. Skömmu áður hafði ég þurft að velja á milli vel borgaðra djobba og láta fínt starf í Perlunni róa, en þarna sat ég svo allt í einu uppi án alls.

Howserbandið reyndi eitthvað að höstla án mikils árangurs og innheimtuaðgerðir eftir að hafa spilað á pizzustað í Hafnarfirði eru efni í sérstaka færslu. Í hönd fóru ömurlegir hungurtímar þar sem maður var nauðbeygður til að snæða á Ara í Ögri á hverjum degi, því öðruvísi var ekki hægt að koma kaupinu sínu í lóg. Best er að taka fram að eigendur Ara koma málinu ekkert við, en þetta minnir óneitanlega á hvernig launin borguðust út fyrir rest hjá gamla kallinum.

Af hverju nafngiftin „sá illa gefni“? Jú, Hjörtur hafði það einhverntíma á orði, eftir að hafa reynt að ræða kaup og kjör við vertann að hann væri svo rosalega illa gefinn að það að tala við hann væri eins og að tala við vegg. Ég held að sá illa gefni hafi fremur gert sér upp greindarleysið, til að erfiðara væri að semja við hann, fremur en að hann væri svona heimskur í alvöru.

Birgir Baldursson kl. 15:18 - efni: almennur heilaspuni -



Viðbætur

Prjónaðu við









Muna þig?






birgir.com