Föstudagur 20. maí 2005

Meira hlæ

Hildigunnur (sem ég hitti á förnum vegi í gær) bloggaði nýlega um tiltekna brandarategund og í kommentunum var þessi sem ég hló upphátt að (hvað er eiginlega með mig í dag?):

Öll börnin komu með vísur í skólann
nema Ási
hann kunni ekki að ríma..

En þetta minnti mig á aðra djóktegund sem var mikið í gangi fyrir svona 20 árum, hefurðu-séð orðaleikina:

  • Hefurðu séð kú reka stígvél?
  • Hefurðu séð mann skaða veður?
  • Hefurðu séð hind berja sultu?
  • Hefurðu séð fót bolta kempu?

Það góða við þessar skrítlur eru súrrealísku myndirnar sem þær draga upp í hausnum á manni og svo þjálfar það heilann að finna upp á nýjum. Ég er reyndar búinn að gleyma flestum þeim sem mér hefur dottið í hug gegnum tíðina.

Munið þið eftir fleirum, eða dettur eitthvað í kollinn á ykkur?

Birgir Baldursson kl. 15:26 - efni: almennur heilaspuni -



Viðbætur
sól berja sultu er klassik

Hel 20.05.2005 klukkan 18:48#

- - - 0 0 0 - - -
Það er nú styttra síðan maður var í þessum bröndurum, svona tíu - tólf ár, en ég man eftir bæði „bíl skúra gólf“ og „ís í boxi“, þótt sá síðari hafi nú kannski ekki fallið nákvæmlega undir formið.

Snæbjörn 21.05.2005 klukkan 11:39#

- - - 0 0 0 - - -
Ég verð að prufa...hefurðu séð hund slappa Drífu? Hahahah djók mar, ömurlegt.

Skrudda 21.05.2005 klukkan 12:37#

- - - 0 0 0 - - -
Hahahaha: Frumsaminn einn: Hefurðu séð þjóðlagarokk?

Heiða 23.05.2005 klukkan 11:31#

- - - 0 0 0 - - -
Og svo einn hérna úr hinni týpunni, en hann er eftir vin okkar Elvars sem heitir Steinn (ekki þó Skapta):
Öll börnin voru í salnum
Nema Jónas
Hann var í Hvalnum

Hahahahhahhaha

Heiða 23.05.2005 klukkan 11:36#

- - - 0 0 0 - - -
Flott!

Birgir Baldursson 23.05.2005 klukkan 12:00#

- - - 0 0 0 - - -

Prjónaðu við









Muna þig?






birgir.com