Já, byggjum eyjarnar!
Þessi frétt er á Moggavefnum í dag:
Vilja byggja í Engey, Viðey og á Geldinganesi
Ég stóð upp á Þverfellshorni Esjunnar einmitt í gær, horfði yfir þessar eyjar á sundunum og hugsaði með mér hvað mikið væri þarna af ónýttu byggingarlandi sem hægt væri að nýta undir æðisleg borgarhverfi. Og þá er ég ekki að tala um þennan forljóta Grafarvogsstíl (að frátöldu bryggjuhverfinu) heldur meira svona dántán Köben eða jafnvel Manhattaníska skýjakljúfaborg. Eða hrærigraut af mörgum stefnum, þröng stræti og mannlíf.
Já, byggjum þessar eyjar. Þetta eru hvort eð er alveg vannýtt útivistarsvæði, gróðurlaus og berangursleg. Reisum flottar brýr á milli, brúkklinískar og góldengeitaðar.
Gerum Reykjavík að alvöru borg.
Ég er alveg sammála þessu, eyjarnar henta vel til að byggja upp fallega stórborg á.
- - - 0 0 0 - - -
Þar sem staðsetning Árbæjarsafns er slæm að þá væri upplagt að flytja öll gömlu húsin úr safninu út í Viðey og byggja þar upp þorp í gömlum stíl, Engey mætti nota sem rannsóknastöð náttúruvísinda, auðvitað iðandi líf á báðum eyjunum, en að planta niður steinsteypu, glerdrasli, malbiki, bílaumferð, háhýsaviðbjóð og brúardrasli finnst mér fráleitt. Geldinganes mætti mín vegna vera svosem enn eitt úthverfi Reykjavíkur og verður vonandi lágreist, hlýlegt, vinalegt og vistvænt. Annars skiptir þetta mig litlu máli þarsem að Reykjavík er hvort sem er leiðinleg og ljót borg að mér finnst, en stóðst ekki málið og blandaði mér hér inn.
En til hvers þarf altaf að gjörnýta útivistarsvæði undir byggingar, má ekkert landsvæði standa autt og ósnortið svo þeir sem nenna ekki að ganga á fjöll geti notið ?
- - - 0 0 0 - - -
Ég er hryllilega sammála þessu, en hvað kemur til að þú sért sammála Sjálfstæðismönnum? Ég hef ætíð álitið þig vinstri-eitthvað, jafnvel út í anarkí...
Ég vil byggja hverja ey í nágrenninu, brýr á milli lands og eyja og háhýsi og blokkir á hvern fótboltavöll!
- - - 0 0 0 - - -
Síðan hvenær er samasemmerki milli þess að vera vinstrisinnaður (og frjálslyndur slíkur) og að vilja ekki byggja upp borgir? Eru borgir í eðli sínu hægri sinnað fyrirbæri? Vilja Vinstri-grænir bara sveitir og þorp?
- - - 0 0 0 - - -
Skv. mjög fyndnu rausi Ingva Hrafns Jónssonar á Talstöðinni í gær vilja vinstri menn víst bara þork og ull - öll meiri framþróun en að selja þorsk og ull ku þeim þykja af hinu illa ;)
- - - 0 0 0 - - -
Einhvernveginn grunar maður Sjallana um að vilja búa til einhverskonar Arnarnes úr þessu. Íbúabyggð fyrir útvalda. Það má álveg byggja á þessum eyjum, en ideally yrði þarna lifandi og iðandi hverfi, ekki svefnbær fyrir auðmenn. Veit reyndar ekkert út á hvað þessar tillögur nákvæmlega ganga, þannig að þetta eru fordómar, en ég vil miklu frekar hafa þetta óbyggt heldur en að hafa þarna einbýlishúsahverfi fyrir ríka pakkið...
- - - 0 0 0 - - -
Sammála því. Það er ekki sama hvað verður þarna byggt. Þetta land ætti að fara undir extensjón af miðbæ, með þröngum hellulögðum götum, þar sem eru glásir af kaffihúsum, veitingastöðum og tónleikabúllum, með íbúabyggð á efri hæðum. Þessi stíll mætti að ósekju teygja sig út í Vatnsmýrina þegar flugvöllurinn fer.
Geldinganesið mætti svo verða skýjakljúfahverfi með veglegum brúm í allar áttir, svona City of Reykjavík.
- - - 0 0 0 - - -
Semsagt leikvöllur viðskipta- og fjármálageldinga. :)
- - - 0 0 0 - - -
Ótrúlegt að menn skuli fara út í vinstri-hægri umræðu í þessu máli.
Hvernig er hugsanlega hægt að færa rök fyrir slíkri málefnaumræðu?
- - - 0 0 0 - - -
Mér dettur helst í hug að hinir hægri sinnaðuðu séu upp til hópa
fullkomlega hugsjónalausir og aðhyllist í blindni allt sem frá Flokknum þeirra kemur. Að sama skapi hlýtur, að þeirra mati, allt sem vinstri kreðsan stingur upp á að vera ómögulegt. :)
- - - 0 0 0 - - -
Það hefur löngum verið þannig, allavega hjá þeim sem áberandi eru í flokksstarfi, að þeir eru á móti flestu því sem andstæðingarnir eru hrifnir af og hampa.
Annars var síður en svo gríðarleg alvara bak við kommentið mitt, en gríðarlega gaman að sjá viðbrögð við því engu að síður.
Hinsvegar, svona grínlaust, held ég ekki að þarna eigi að vera einbýlishúsahverfi fyrir vel stæða (eða "ríka pakkið" eins og einhver kallar þá), því það er nóg af of dýrum einbýlishöllum við Háteigsveginn, í Þingholtunum og svo uppi í Garðabæ fyrir þá sem eru komnir yfir miðjan aldur.
- - - 0 0 0 - - -
Jamm, skellum miðbæ Kaupmannahafnar á þessi svæði og City á nes geldinganna.
- - - 0 0 0 - - -
Sú hugmynd er falleg, þó svo hún verði að teljast í ólíklegra lagi, þar sem byggingastíll síðustu ára hér á landi er svo voðalega mikið "Grafarvogs" - sem er ekki gott.
Lengi má þó láta sig dreyma.
- - - 0 0 0 - - -
Já, því miður hefur Grafarvogs-smekkleysan fengið að vaða uppi í íslenskum arkitektúr alltof lengi.
- - - 0 0 0 - - -
Prjónaðu við