Ef ég væri ríkur
Ef ég væri Björgólfskur auðkýfingur myndi ég láta verða mitt fyrsta verk að borga smíði á nýjum kontrabassa handa Þórði Högnasyni. Hansi fengi djobbið. Hann kláraði nýlega að smíða nýjan bassa fyrir Birgi Bragason og sá lúkkar sjarp og sándar unaðslega. Bassi Þórðar er aftur á móti orðinn alveg hljómlaus, en eigandinn lætur hann sánda með því að djöflast á honum af lífi og sál.
Ég myndi líka moka fjármunum í fornleifauppgröft. Það vantar alltaf fé til þessara dásamlegu verkefna, en einn svona auðkýfingur ætti að geta reddað því án þess að það myndi hrifsa nokkuð að ráði í budduna.
Sjálfur myndi ég svo sniglast kringum uppgröftinn til að komast í annarlegt hugarástand.
Svo er ekki spurning að maður myndi greiða út í hönd allan kostnað við ráðstefnuhald Siðmenntar á næsta ári. Þetta er alþjóðleg ráðstefna og vonir standa til að fá nokkra eðalfyrirlesara til landsins.
Meira um það síðar.



Megirðu verða sem ríkastur. Er mikið að spá í selja einn rafbasssann upp í kontra... spurning um að bjalla í Björgúlf. Hmm.. já svo vinnur kærastan við fornleifar. Mér lýst vel á þessa aura drauma þína. ;)
Siggidóri 15.06.2005 klukkan 23:06#