Laugardagur 18. júní 2005

Ef ég væri ríkur 2: Poppminjasafn

Paradísar-Gibson Björgvins Gíslasonar var skilað til hans eftir að Hard Rock Café lagði upp laupana. Eflaust gildir það sama um aðra íslenska muni sem þangað söfnuðust. Nú ríður á að safna þessu aftur saman.

Okkur vantar almennilegt poppminjasafn. Þessir munir eiga eftir að verða ómetanlegir þegar fram líða stundir og um að gera að þeir fari ekki á flæking og endi fyrir rest í Sorpu. Þarna yrði að vera hægt að sjá allt frá gítarnöglum upp í hljómsveitarrútur. Heví-trommusett Ásgeirs Óskarssonar yrði þarna á palli og eins Þursaflokks-rótótrommusettið sem hann notar á Þursabit. Sú bassatromma sándar best allra tromma.

Og gamli kontrinn hans Þórðar ætti þarna skjól þegar Hansi væri búinn að smíða nýjan.

Ef ég ætti Björgólfskar upphæðir stæði ekki á mér að koma á fót slíku safni í stóru húsnæði. Og ég veit nákvæmlega hver ætti að vera yfirpoppminjavörður.

Birgir Baldursson kl. 13:46 - efni: almennur heilaspuni -



Viðbætur
Gardínujakkinn hans Kalla Bjarna má reyndar alveg fara í Sorpu mín vegna...

Ingvar Valgeirsson 19.06.2005 klukkan 00:21#

- - - 0 0 0 - - -
Hvaða peningavolæði er þetta! Allir vita að tónlistarfólk græðir milljónir á spiladjobbum og STEF-monní frá útvarpsstöðvunum.

Jóakim Aðalönd 19.06.2005 klukkan 08:20#

- - - 0 0 0 - - -
Je ræt.

Birgir Baldursson 19.06.2005 klukkan 13:15#

- - - 0 0 0 - - -
Ég skal skoða dæmið ef safnið yrði staðsett í Kópavogi í framtíðinni, eitthvað svo tilfinningalegt við það að mér finnst.

SS SKA.

SS SKA 21.06.2005 klukkan 10:16#

- - - 0 0 0 - - -
Þú hefur unnið í happdrætti, strákur. Skv. lágmarkstaxta FÍH færðu 3500 kall fyrir að halda takti í klukkutíma! Svona pening sjá aldrei útlendingarnir í Kárahnjúkum. Svo ef þú lendir í stúdíói, þá er borgað þó ekkert sé æft! Svo eru alls konar álög, bara t.d. ef maður spilar í Rvk en býr í Kópavogi. Og gleymdu ekki STEF. Þeir eru eins og Stasi. Alls staðar. Krakkarnir á leiksólanum borga meira segja fyrir að heyra Sálina gaula. Það kostar ekki neitt að vera meðlimur þar og maður fær bara tékkan sendan í pósti!

Jóakim Aðalönd 21.06.2005 klukkan 17:44#

- - - 0 0 0 - - -
Ætli Bílddælingurinn geðþekki Jón Kr. Ólafsson tæki ekki góssinu fegins hendi í Musteri minninganna. Svo er víst líka svona rokksafn í mótun í Reykjanesbæ..

Stebbi Magg 22.06.2005 klukkan 22:07#

- - - 0 0 0 - - -
Ekki finnst mér ástæða til þess að Keflvíkingar og aðrir nærsveitarmenn þurfi endilega að eiga heiðurinn af því að vera með poppminjasafn. Fráleitt er að einblína bara á Keflavík, ræturnar og sagan liggur víða en þar. Djævistinn Jón Kr Ólafsson er með sitt eðaldót þarna uppí afdölum, heldur langt fyrir suma að fara þangað. Þannig að mér finnst hið besta mál að höfuðborgarsvæðið og þá tildæmis Kópavogur eða jafnvel Reykjavík setji á fót þriðja safnið hér á landi sem sérhæfir sig á þessum sviðum, þannig að maður þurfi ekki að leita langt yfir skammt.

Össa Hæ 23.06.2005 klukkan 02:50#

- - - 0 0 0 - - -

Prjónaðu við









Muna þig?






birgir.com