Mánudagur 27. júní 2005

Ég er anarkisti

Ég hef lengi litið á mig sem frjálslyndan sósíalista en ekkert umfram það. Hef einhvernveginn séð fyrir mér að samfélaginu sé best borgið með lýðræðislega kjörnu stjórnvaldi, þar sem þess er gætt að þjóðþrifapóstar velferðarinnar séu eilíflega í eigu þjóðarinnar, en framleiðsla og sala annarrar vöru og þjónustu geti verið í höndum svokallaðra smáborgara.

Slíkt hef ég séð fyrir mér að skapi sátt í samfélaginu, dugnaðarforkar geti efnast af eigin framtaki, en þó án þess að það bitni á lifsnauðsynjum annarra.

Í kvöld keypti ég lítið rit af Sigga Pönk. Það heitir Um anarkisma og er eftir Nicolas Walter. Við lestur þess urðu mér ýmsir hlutir skýrir sem áður hafa verið vafðir fordómamóðu.

T.d. hefur vanahugsunin og innprentun ráðandi afla þjóðfélagsins haldið mér í þeirri trú að skipulag án stjórnvalds hljóti óumflýjanlega að tákna glundroða. Og eins illa og mér hefur verið við allt kúgunarvald (sjáið bara skrif mín á Vantrú) þá hef ég hallast að því að það myndi duga að stýra stjórnvaldinu til frekari þjónustu við samfélagið og losa það undan hagsmunagæslu fyrir ráðandi auðmagnskólfa.

En mér sýnist eftir lestur þessa rits að skipulag án stjórnvalds sé framkvæmanlegt. Og það gleður mig óneitanlega. Hér eftir ætla ég að að leggja mig í líma við að skeggræða þetta atriði við anarkistana sem ég þekki og ef til vill, í kjölfarið, beina kröftum mínum í þá átta að vekja samfélagið til vitundar um þetta skipulag, sem virðist á pappírnum svo miklu betra og farsælla.

Það veltur þó á því að ég láti endanlega sannfærast. Ég á eftir að beita efahyggju minni og gagnrýninni hugsun á þetta allt næstu mánuðina. Kannski eru þetta, þegar öllu er á botninn hvolft, aðeins draumórar og ígildi trúarbragða, eiga engan snertipunkt við raunveruleikann.

Ríki eða ekki ríki? Okkur hefur tekist að tengja þjóðskipulagið fram hjá hinu geistlega. Kannski er hægt að tengja það framhjá ríkinu líka.

Vonandi.

Birgir Baldursson kl. 02:12 - efni: stjórnmál -



Viðbætur
Kæri hr. Birgir Baldursson,

Þú baðst mig um að heimsækja heimasíðuna þína. Ég fann ekkert gagnlegt þar, hvorki um geimverur,trúmál, andleg mál né neitt annað, sem gæti bent til þess að þær séu ekki til eða hafi aldrei komið hingað til Jarðarinnar.

Ég ætla ekki að vera vondur við þig, eins og ég var við Skeptíkus. Ég er maðurinn sem trúir því, að þeir sem trúa því að FFH og dulræn öfl séu ekki til, sé geðsjúkt eða geðveikt fól, svo lengi sem þeir eru að þröngva eða nauðga öfgafullum skoðunum sína upp á aðra. Með því að láta Skeptíkus ljúga að þér, og fá þá til að birta grein eftir þig, til að svara bréfi frá mér til þeim sem kemur þér ekki rassgat við, ertu bara að sýna frekar fram á fyrir mér, hvað þeir eru miklir aumingjar.
Ég ber virðingu fyrir málefnum geðsjúkra, og ég tel að fólk sem virkilega vill trúa því að faraóar hafi byggt pýramídana eða að geimverur hafi aldrei heimsótt Jörðina eða að fólk sé vélmenni, þ.e. að sálin sé ekki til, etc, sé með það sem kallast á fræðimáli psychosis. Við akademíkkerar, erum lengi að komast að niðurstöðum um hluti, og það tók okkur meira en 50 ár að komast að því að utanjarðarverur hafi heimsótt Jörðina. Það var ekki auðvelt fyrir okkur að viðurkenna hluti eins og atburðina sem gerðust í Roswell, en um leið og það gerðist, breytti það því hvernig háskólasamfélagið starfar í heiminum.
Nú viðurkenni ég sem háskólaborgari, og sem akademíkker, og sem andlega og vísindalega sinnaður maður, að ég trúi einfaldlega ekki því að sömu fyrirbærin sem sjást aftur og aftur og aftur um allan heim á sama tíma séu tilbúningur einhvers eins eða fleiri aðila. Bara sorrý, ég trúi því ekki. Þannig að ég vil biðja þig um, nema þú sérst meðlimur í Skepticusi, að skipta þér ekki af mér. Í þessum heimi, er ég forfaðir hvíta hákarlsins. Forfaðir hvíta hákarlsins, var svo stór, að hann gat bitið hvíta hákarlinn í sundur um miðjuna þvera. Þegar einhverjir ómerkilegir trúðsfiskar eru að reyna að synda upp í opið geðið á mér, þá þarf ég ekki annað að gera, en að gera það sem ég gerði við Skepticus, og það er að opna kjaftinn.
Þá sogast trúðfiskurinn inn í kjaftinn á mér, og lendir á tönnunum, og drepst. Tennurnar, í forföður stóra hvíta hákarlsins, gátu orðið allt að 20 centímetra langar. Svo næst þegar þú eða einhver annar, sem trúir ekki á FFH, eða skyld fyrirbæri,ætlar að fara að abbast upp á mig, þá vil ég að það sé munað eftir þessum orðum. Ég kem ekki vel fram við fólk sem gerir lýtið úr öðrum, þó að Jesús Kristur hafi sagt að það eigi að koma vel fram við þá sem minna mega sín, eins og t.d. ruglað fólk sem heldur að dulræn öfl séu ekki til, á ekki að umbera það að það séu stofnuð samtök sérstaklega til þess að ofsækja friðsamt fólk sem hefur ekkert um efahyggju að segja.
Hvorki ég, né aðrir nemendur í Háskólanum, lýðum svoleiðis lagað.
Það sem þú gerðir, var það, að skera sjálfan þig á rifinu sem þú varst að synda á, og þar með vísaðirðu mér á ´blóðslóð´þína, og ég er ansi næmur fyrir svoleiðis löguðu. Ég ætla að láta þig vita það, að ég mun virða friðhelgi þína, í þetta sinn, og ég mun ekki heimsækja heimasíðuna þína aftur, en ef þú ert meðlimur í rugludallafélaginu, þá talarðu bara við mig á internetinu, og hugsar um forföður hvíta hákarlsins í leiðinni, því ég ætla að fara frá Íslandi, og fara út til að læra þar í framtíðinni, og á meðan vil ég, að þú og aðrir rugludallar, eins og skepticus, látið aðra í friði hér, sem taka vísindum og andlegum málum alvarlega.
Það er ekkert vísindasamfélag eftir sem getur verndað fólk eins og þig fyrir árásum stóru hákarlanna, því gamla vísindasamfélagið er dautt. Fólk eins og Skepticusarrugluhausarnir eyðilögðu stóran hluta minnar barnæsku, og þið höfðuð meira en heila öld til að sýna fram á að ruglið í ykkur stæðist. Nú stendst það ekki, og þar með er spilaborgin ykkar hrunin. Næst þegar þú ætlar að skrifa einhverjum bréf, skaltu velja aðila, sem er ekki jafn ríkur og ég er, og sem veit ekki jafn mikið um lögin í þessu landi og ég geri, og sem kærir sig um ruglið í þér eða öðrum sem trúa því að dulrænir eða andlegir hlutir séu ekki til.
En mitt ráð til þín, er það, að vera ekki að elta uppi fólk eins og mig, og láta andleg mál og aðra hluti sem pirra þig, í friði.
Ástæðan fyrir því, af hverju ég er ekki að sinna þér meira í augnablikinu, er sú, að ég er full mettur, og nýbúinn að senda póst til Skepticusarfélagsins, sem inniheldur beiðni um að birta ekki mína pósta nema með mínu leyfi. Ég ætla ekki að hætta að gera lítið úr skoðunum fólks sem gerir lítið úr hlutum eins og FFH, ég ætla að halda áfram,þar til einhver þeirra æsir sig upp og skemmir fyrir hinum, og þá verða engar spilaborgir eftir meira sem hinir geta notað til að halda ruglinu í sér uppi.

Þannig að næst, þegar þú, eða aðriri trúðfiskar, fara í sundferðalag á hafsbotni, látið stóru hellana, og kóralrifin í friði, nema þau kóralrif sem þið þekkið, og getið synt framhjá hættulaust,

kv.

matrixs@mi.is

Asgeir Valur 06.07.2005 klukkan 16:27#

- - - 0 0 0 - - -
Ég vildi óska þess að ég skildi hugarheim þess manns sem hér að ofan ritar.

Birgir Baldursson 07.07.2005 klukkan 00:44#

- - - 0 0 0 - - -
ekki ég.

kristín 07.07.2005 klukkan 11:29#

- - - 0 0 0 - - -
Forfaðir hvíta hákarlsins? Ég ætla ekki einu sinni að segja hvað þetta minnir mig á.

Annars minnti mig að hér hefði verið viðbót frá mér?

Vésteinn 09.07.2005 klukkan 23:29#

- - - 0 0 0 - - -
Já, hér var viðbót frá þér, Vésteinn. Ég veit ekki hvert hún fór, en grunar að ég hafi eytt henni þegar ég reyndi eftir megni að henda út kommentaspammi frá einhverjum fávitum á erlendri grundu. Sorrí.

Birgir Baldursson 11.07.2005 klukkan 14:52#

- - - 0 0 0 - - -
Skiptir engu...

Vésteinn Valgarðsson 12.07.2005 klukkan 01:25#

- - - 0 0 0 - - -
Jú, það skiptir. Hér er kommmentið:

Svo ég segi minn túskilding á anarkisma, frjálslyndum sósíalisma og hinni langvarandi rökræðu um ríki/ekki ríki, þá veit ég um ýmsa sem kalla sig ýmist anarkista eða frjálslynda sósíalista og gera annað hvort ekki greinarmun á, eða álíta þetta tvennt skarast í stóru sniðmengi. Ég álít sjálfur að þetta skarist. Frjálslyndur sósíalismi er í mínum huga frjálslyndur á sama hátt og anarkismi er það, semsagt afgerandi frjálslyndur.

Markmið anarkista er hið sama og markmið (annarra) kommúnista, sem er að koma á samfélagi sem er laust við stéttaskiptingu og ríkisvald. Það hefur lengi verið djúpstæður ágreiningur um það, hvernig þeirri breytingu verði komið í kring og hafa anarkistar löngum viljað afnema ríkisvaldið, en kommúnistar að öreigastéttin yfirtæki það og mótaði í sinni mynd.

Ég, fyrir mitt leyti, sé nákvæmlega enga haldbæra ástæðu fyrir því að þetta tvennt þurfi að stangast hvort á við annað. Frá því þverhausarnir Marx og Bakúnín gátu ekki komið sér saman í 1. alþjóðasambandinu á 19. öld hefur sárlega skort samræðu milli anarkista og (annarra) kommúnista, einkum marxista. Hvorir tveggja hafa tapað á því að hafa ekki gagn og aðhald hverjir af öðrum.

Marxistum hefur hætt til of mikils stjórnlyndis og ofskipulags, en anarkistum til of lítils skipulags og stefnu og lausrar í reipunum, og svo hefur báðum hætt til sundurlyndis og slíks, bæði innbyrðis og út á við. Ég, fyrir mitt leyti, sé það sem stóran og mikilvægan áfanga í hinni miklu baráttu, eða byltingu, ef þú vilt kalla það það, að anarkistar, sósíalistar, kommúnistar, marxistar, eða hvað sem menn kalla sig, geti stillt saman strengi sína og komið sér saman um (a) markmið og (b) leiðir. Það vildi ég sjá, takk fyrir. Og þú átt að vera með í að lyfta þessu grettistaki, takk fyrir.

Birgir Baldursson 12.07.2005 klukkan 13:05#

- - - 0 0 0 - - -
Hei, þetta var nú drengilega gert! :)

Vésteinn 13.07.2005 klukkan 09:44#

- - - 0 0 0 - - -
Enda Birgir drengur góður :)

Gunnar 15.07.2005 klukkan 16:14#

- - - 0 0 0 - - -
= ... kv frá Hc =

þeir sem halda því fram að anarkismi sé óframkvæmanlegur eru yfirleitt þeir sem eru orðnir vanir - eigum við að segja: háðir? - hugmyndinni um vald, um drottnum, um óábyrgð gerða sinna, að þeir geta ekki hugsað sér annað form samfélags - geta ekki hugsað sér samfélagsmynstur sem krefst samvinnu, fórna og samstillingar, - samhygðar.

á miðri 19. öld áttu danskir embættismenn ákaflega erfitt með að sjá fulltrúalýðræði fyrir sér ...
---

... eftir því sem ég eldist, fer ég að trúa betur orðum Axels vinar míns, sem er á leið til Indland að heimsækja nokkur þorp - þessi þorp eru algerlega rekin á grundvelli anarkismans. en hann heldur því fram að anarkismi sé bara raunhæfur ef menn hafi eitthvert sameiginlegt (siðferðis?) markmið að stefna að ...

.....


kaflinn um Kidda og Stein er sérkafli, .. hlýjar um hjartarætur - jafnvel ,nýbúum´ eins og Hc sem missti af Kársness-árunum ...
ótrúlega gaman að rifja þetta upp. - já, Búmmsarabúmm var bara dropi í hafið ... mætti rifja upp nöfn eins og Klæmint, Hildimóra, Stuttklippti, Lángi Dúnk-Dúnk sonur Nínu DúnkDúnk (muniði eftir því þegar hann mætti með klammettubyssuna og við fórum í rússneska rúllettu a la Deer Hunter?), Skemmmmmtilega Björnsdóttir (Vilhelmína, sem enginn þoldi, og KJG varð því að dýrka, haha ....), Benjamín, Elínbergur ... nöfnin hans Kidda voru óteljandi.
---
gleymd smáatriði, þyrfti að rifja þennan tíma upp í góðri bók með myndum. eitt og eitt orð - eins og ,,líkamslistir´´ , eða ,,gjuð''- framburðurinn (hljómaði raunar meira eins og ,,gíð´´.. gíðjón...


KJG er afsakaður þó að hann hafi ekki séð sér fært að yfirgefa gósenland Reagans fyrir það að norpa í norðannæðingi á Lækjartorgi. enda á hann ekki afturkvæmt vegna þess hv lengi hann hefur búið ólöglegur í landi Judy Garland og Mary Poppins ...

lái honum ekki að stinga skerið af, svosem ... en fyrir Kidda er Ísland hvort eð er óþekkjanlegt. allt hefur breyst ...


eitt get ég staðfest 100%.
að minni KJG er óbrigðult. ég prófaði það í frækilegri heimsókn til Kristins á Selfoss
(til Beitarhúsa(r)afa).
þar sneri ég honum við í kirkjugarðinum og tíndi upp af tilviljun nöfn af legsteinum.

Kiddi mundi hvert einasta þeirra. fæðingar- og dánardægur. og það var alls óskylt fólk ...


...

jæja, BiB, kominn með ,stalker´?
þvílík andagift (og geðveiki) í skrifum þessa hvíta hákarls!


,,...Forfaðir hvíta hákarlsins .. Þegar einhverjir ómerkilegir trúðsfiskar eru að reyna að synda upp í opið geðið á mér, þá þarf ég ekki annað að gera, en að .. að opna kjaftinn ..´´

setningin sem fær 1. verðlaun er:
,, ... Ég kem ekki vel fram við fólk sem gerir lýtið úr öðrum ...´´

- gerið ekki andlegt eða líkamlegt lýti úr neinum, eða yðrum eru iður að mæta hahaha ... - sumt í skrifum Hvíta Hákarlsins minnir mig óþyrmilega á Bölmóð Spámann sem var í Eldflaugastöð Hergé...

- kveðja
=Hc=

=Hc= 24.07.2005 klukkan 01:56#

- - - 0 0 0 - - -

Prjónaðu við









Muna þig?






birgir.com