Laugardagur 20. ágúst 2005

Spuni

Spunatónlist er mjög oft athvarf talentleysingjanna. Og brjóstumkennanlegast er þegar þeir sem ástunda stefnulaust drasl halda því fram að þeir séu að iðka merkilegri listir en við hin sem flytjum annarskonar tónlist.

Birgir Baldursson kl. 19:04 - efni: tónlist -



Viðbætur
Hvað með þá sem eru með heilaspuna?

Óli Gneisti 20.08.2005 klukkan 23:25#

- - - 0 0 0 - - -
haha, þú hljómar bara eins og Finnur Torfi...

hildigunnur 21.08.2005 klukkan 00:08#

- - - 0 0 0 - - -
Ertu með einhverja ákv. tegund af spunatónlist í huga? Eða jafnvel... ákv. tónlistarmenn?

Skonrokk 21.08.2005 klukkan 02:39#

- - - 0 0 0 - - -
Já.

Birgir Baldursson 21.08.2005 klukkan 07:44#

- - - 0 0 0 - - -
heyr heyr, hverja hefur þú í huga? eða hvaða tegunda spunatónlistar?

Sævar 22.08.2005 klukkan 15:57#

- - - 0 0 0 - - -
Ég er að tala um þá sem dylja getuleysi sitt bakvið stefnulausa þvælu sem þeir kynna svo sem göfuga tónlist.

Spuni er eitt erfiðasta tónlistarform sem hægt er að ástunda og því veltur útkoman algerlega á því að þeir sem spinni hafi öfluga getu í tónlist og góðan skilning. Ég nefni tríóið Flís hér sem dæmi um frábæra spunameistara. Ef þú heyrir ekki muninn á spuna þessara listamanna og draslinu þá verður bara að hafa það.

Birgir Baldursson 22.08.2005 klukkan 16:11#

- - - 0 0 0 - - -
Svo ég haldi nú aðeins áfram með þetta: Góðir spunamenn vita sem er að rétt eins og súrrealismi þarf að byggja á realisma þarf spuni að byggja á því hefðbundna. Fallegast er þegar spuninn brýstu út úr hefðbundnara formi, líkir jafnvel eftir því og heldur lögmálum þess á lofti.

Súrrealismi í bókmenntum verður óbærilega leiðinlegur ef hann hefur engan raunveruleika að tylla í. Mér fannst lengi ritverk Sjóns vera of súrreallísk, það vantaði alla jarðtengingu til að hið súrrealíska hefði eitthvað til að hefja sig upp úr. Nefni Stálnótt sem dæmi. Í seinni tíð hefur hann lagað þetta og nú eru verk hans miklu ánægjulegri lesning. Líkist meira Kazuo Ishiguro sem lætur mann týna sér í realískri framvindu en súrrealismann fær maður svo í bakið þegar síst varir.

Þeir sem auglýsa spunakvöld eru að flytja endalausar Stálnætur, hafa sennilega ekki enn náð að höndla hið hefðbundna nægilega vel til að geta almennilega byggt á því.

Birgir Baldursson 22.08.2005 klukkan 16:21#

- - - 0 0 0 - - -
"VIÐ HIN" STÓRIDÓMUR BALDURSSONAR.

kjartan 22.08.2005 klukkan 23:58#

- - - 0 0 0 - - -
Móðgaður spunamaður? Hei, þetta er bara upplýst sannfæring mín. Þér er velkomið að hrekja skoðanir mínar með rökstuðningi ef þú getur, sýna mér fram á að ég hafi rangt fyrir mér. En þú kýst fremur að fara bara í fýlu. ;)

Birgir Baldursson 23.08.2005 klukkan 00:21#

- - - 0 0 0 - - -
"Spunatónlist er mjög oft athvarf talentleysingjanna"


Ég myndi álykta fremur að "talentleysingjarnir" leiti miklu frekar athvarfs í spunagildrunni, frekar en "spunatónlistin" sé
einhver rotþró tónlistarmanna með annarleg sjónarmið.


"stefnulaust drasl"
Afstæð hugsun, miðlægt mat, þröngsýni, rökgelding?

"Við hin"
Hér aðskilur þú þig sjálfan frá allri "spuna"tónlist, sem í huga flestra sem þekkja til þín , er þitt aðalsmerki og að miklum leyti grundvöllur þíns lífs?

kjartan 23.08.2005 klukkan 00:55#

- - - 0 0 0 - - -
Ég myndi álykta fremur að "talentleysingjarnir" leiti miklu frekar athvarfs í spunagildrunni, frekar en "spunatónlistin" sé einhver rotþró tónlistarmanna með annarleg sjónarmið.

Enda var það einmitt það sem ég var að segja. Hún er athvarf þeirra, ekki einhver rotþró. Ertu nokkuð að snúa viljandi út úr orðum mínum?

"stefnulaust drasl" Afstæð hugsun, miðlægt mat, þröngsýni, rökgelding?

Aftur rangtúlkun. Ég er ekki að segja að öll spunatónlist sé stefnulaust drasl, heldur þetta sem talentleysingjarnir ástunda.

"Við hin" Hér aðskilur þú þig sjálfan frá allri "spuna"tónlist, sem í huga flestra sem þekkja til þín , er þitt aðalsmerki og að miklum leyti grundvöllur þíns lífs?

Nei, hér aðskil ég mig frá þeim sem iðka spuna eingöngu af því annað form er þeim ofviða.

Ég hef yndi af því að leika spuna. Og ég kýs að gera það með fólki sem hefur til þess burði. Kombóið er einn vettvangurinn og Loftfélag Íslands/Vormenn Íslands/Tvdv var lengi ágæt eldisstöð spunarannsókna en ekki segi ég að það sem sú grúppa gerði sé neitt í ætt við snilld. Ágæt tilþrif þó á stundum, sérstaklega þegar Daníel og Sigurður spunnu saman á píanó og selló. Og Ingó hefur líka átt börníng hluti á saxinn, en við hinir náðum sjaldnast að styðja nægilega vel við það, enda ekki fullburða í impróinu.

Birgir Baldursson 23.08.2005 klukkan 01:09#

- - - 0 0 0 - - -
Kjartan, kannski er þessi misskilningur á orðum mínum ekki sjálfum þér að kenna. Ég hef verið að reka mig á að ég virðist ekki alltaf skrif nægilega skýran texta.

Birgir Baldursson 23.08.2005 klukkan 03:53#

- - - 0 0 0 - - -
Tja, veit ekki hvar ég á byrja en verð víst að svara þar sem þessi pistill beinist augljóslega að Spunakvöldum sem ég er einn skipuleggjanda að. Ég var búinn að ákveða að svara þessu ekki á meðan þess væri kostur, sé ekki tilganginn í að munnhöggvast um list, en eftir að það er orðið skýrt að hverju hann beinist þá á ég ekki annara kosta völ.

En í fyrsta lagi, til að það sé alveg skýrt: Spuni og tengd Spunakvöld eru opin vettvangur til hverskonar spuna og öllum er heimil þátttaka. Þeir sem skipuleggja þessi kvöld eru því augljóslega ekki þeir einu sem koma fram á þeim og því er ósanngjarnt gagnvart þeim fjölmörgu og hæfileikaríku listamönnum sem þar hafa komið fram að kalla þá getulausa og talentlausa.

Það er yfirlýst stefna Spuna að vera ekki með namedropping en ef svo væri ekki þá gæti ég talið hér upp mörg nöfn virtra listamanna sem hafa komið við sögu Spunakvölda, bæði í þessari atrennu (sem er komin vel á annað ár) og eins á árum áður. Meðal ástæðna þess að við teljum ekki upp nöfn þeirra sem komið hafa fram er að þó að einhver hafi komið fram á einu Spunakvöldi þá segir það ekkert um hvort viðkomandi er á næsta Spunakvöldi.

Spuni setur á engan hátt neina tryggingu fyrir því að það sem fram kemur sé "göfug tónlist" og ég veit ekki hvaðan þú hefur þann frasa, ekki af vefnum okkar allavega né úr mínum munni. Enda er ekki hægt að lofa neinu þegar öllum er frjáls þátttaka. Það er reyndar mín persónulega skoðun að besti spuninn verði til þegar öryggisnetinu er sleppt, eitthvað sem mér finnst oft sárlega vanta í jassspuna sem oft verður bara leikur í kringum skala eða hljóma. Með fullri virðingu fyrir því mörgu virkilega góða sem hægt væri að kalla jassspuna. En að einhver tónlist sé göfugri en önnur finnst mér eiginlega bara frekar fyndið.

Athugaðu að ég er hér ekki að tala um ramma í kringum spunann, mér finnst hann oftast vera af hinu góða enda fer ómældur tími hjá mér í hverjum mánuði að undirbúa og skipuleggja það sem ég ætla að gera á næsta Spunakvöldi. Smá dæmi til að skýra (vonandi!):

Öryggisnet er t.d. eitthvað svona: "Ef tónlistin verður of skrítin þá er ég hérna með fínan skala sem ég hleyp upp og niður í smá tíma á meðan ég jafna mig" eða eitthvað sambærilegt.

Einfaldur rammi gæti verið: "Við ætlum að telja inní þetta stef af fullum krafti og láta það renna út í taktfast kaos, draga síðan niður styrk og tempó samhliða þangað til allur taktur er horfinn, fljóta þar til við erum að sökkva og renna þá veikt í stefið aftur þar til fullum krafti er náð og enda eins og við byrjuðum. Snarpur endir, engar ruslatunnur"

Þetta eru frekar næv dæmi en ég vona að meiningin og munurinn komist til skila.

Þér finnst að spuni þurfi að byggja á því hefðbundna, ég er því ósammála að þess þurfi. Ég er þvert á móti á því að "hefðbundin" tónlist í dag hefði gott af því að innihalda meiri spuna og að menn gæfu sér lausari tauminn við tónsköpun sína. En það er bara ég, ég fékk nóg af að semja og spila samda tónlist fyrir 15 árum síðan og finnst það satt að segja afskaplega ókrefjandi tjáningarform þó ég sé á engan hátt að lasta þá sem það gera og hafa veitt mér marga ánægjustundina. Ég bara hef ekki áhuga á því sjálfur lengur. Þess vegna spinn ég. Hvað aðrir gera er þeirra mál.

Í mínum huga er spuni ekki tónlistarform í þeim skilningi að rokk/jass/blús/kántrí/hvaðsemer sé tónlistarform heldur er spuni tjáningarform sem getur átt heima í hvaða listgrein sem er, ekki bara tónlist þó hann sé líklega algengastur þar. Og þar með í hvaða tónlistarformi sem er. Og í raun er spuni oft upphafið að tónsmíðum, sérstaklega þar sem spilað er í minni hljómsveitum. Einhver fær hugmynd, spilar og spinnur það í smátíma á meðan hinir spila og spinna við. Festa síðan í lag og þar með lýkur oftast hlutverki spunans í því lagi. Þetta er líka spuni og er vel á færi allra sem hljóðfæri geta valdið. Þetta veit ég að þú veist vel, ég vildi bara hafa þetta skýrt.

Ég get verið sammála þér um að spuni sé erfiður og krefjandi en samþykki á engan hátt nauðsyn þess að þeir sem ætla að spinna verði að "hafa öfluga getu í tónlist". Góðan skilning og tilfinningu fyrir tónlist, já, en að setja tæknilega hæfni sem skilyrði fyrir góðum spunamanni er að mínu viti ekki rétt. Sá sem minni tækni hefur getur augljóslega ekki spilað margt af því sem hinn tæknilega hæfari getur. Hans list verður oft einfaldari sem getur leitt til einhæfni en því miður verður það oft svo hjá mörgum sem tæknilega eru betri að flækjustigið í spunanum fer með tjáninguna útí veður og vind og spuninn verður að eintómri fingraleikfimi sem vekur þá eina tilfinningu hjá þeim sem heyrir að "djö er hann góður á gítarinn". Ekkert að því en það er ekki það sem ég vil heyra í tónlist.

Fyrir mér snýst tónlist ekki um tækni heldur um tilfinningar, að snerta við fólki. Og það geta allir gert á góðri stundu, með réttu hugarfari og sínum hæfileikum. Þess vegna eru Spunakvöld öllum opin og Spuni setur ekkert mæliker á þá sem þar koma fram. Mér hafa stundum þótt atriði leiðinleg en á meðan fólk fer eftir samþykktum undirbúningsfundar um lengd atriða þá er ekkert við því að segja, þetta er þeirra tjáning og það vill svo til að hún höfðar ekki til mín.

Stutt lýsing á hvernig ég kem að mínum spuna:
1. Ég hef leik, vel undirbúinn, tónlistarlega, tækjalega og andlega en þó án þess að hafa hugmynd um hvaða nótur ég ætla að spila eða hvenær.
2. Ég geri mitt besta til að búa til góða tónlist, ekki síst með því að hlusta á það sem er í gangi.
3. Ég lýk leik og ef vel hefur gengið er tilganginum náð og ég er ánægður (reyndar rúmlega það ef mjög vel hefur gengið)

Ég gæti skrifað stutta ritgerð út frá ofanskráðu en læt það ógert. Kannski síðar. Kannski er það nauðsynlegt til að fólk skilji afhverju ég spinn. Kannski skiptir það mig ekki öllu máli. :)

Mínar vonir standa fyrst og fremst til þess að mér og mínum meðspilurum þyki þetta gott/skemmtilegt/áhugavert. En ef aðrir njóta vel þá gleður það mig samt afskaplega mikið þó að eigin ánægja með afurðir spunans gangi fyrir ánægju áhorfenda. Hvort að öðrum finnist ég vera hæfileikalaus er líka þeirra mál, ég hef aðra skoðun á því en ætla ekki að fara að rífast um það, slík umræða er tilgangslaus og afskaplega leiðinleg.

Mér finnst mjög leiðinlegt þegar þú drullar yfir Spunakvöldin og þátttakendur á þeim án þess að hafa (mér vitanlega) komið á eitt einasta þeirra. Nú veit ég ekkert hvort þú hefur hlustað á einhverjar upptökurnar frá Spunakvöldum sem eru á vefnum okkar, sumar eru að mínu mati mjög góð tónlist, aðrar hræðileg. Því miður vantar mikið af upptökum þarna inn þar sem ég bara ekki haft tíma til að sinna miðlun Spunagagna, sköpunin gengur fyrir í mínum huga og að mörgu öðru er að hyggja þar sem Spuni er áhugamál hjá mér.

Þó er eitthvað af þeim á Spunavefnum ef smellt er á Áður. En síðasta Spunakvöld er reyndar til á mp3 formi á annari slóð, http://no.hysing.org/spuni/Spunakvold6.juli2005/ og ég er ánægður með margt sem þar er að finna þó í sumu sé meira að finna fræið að einhverju sem ég vonast til að heyra áður en árið er á enda. Ef óskað er eftir beinum vísunum á það sem mér líkar betur en annað þá er það sjálfsagt mál að verða við því, bara láta mig vita :)

Ég verð að viðurkenna að ég skil ekki þennan rosalega pirring í garð Spuna og veit ekki hvaðan hann kemur. En ég ætla allavega að gera mitt besta til að eyða sem minnstum tíma í rökræða um list, það geta aðrir gert, ég vil frekar nota minn tíma í að skapa hana.

Set þetta líka á Hjalið mitt til að eiga og vísa þaðan á þína færslu.

Bestu kveðjur
Gunnar

Gunnar 23.08.2005 klukkan 10:47#

- - - 0 0 0 - - -
Takk fyrir þetta innlegg, Gunnar. Grein minni var í engu beint gegn þér, enda hefði ég varla fengið þig inn í Loftfélagið á sínum tíma hefði ég talið þig talentlausan. Nei, kveikjan að þessum skrifum voru viðbrögð eins félaga okkar við því þegar ég viðraði þessa skoðun mína á draslinu sem ég hef tekið þátt í með honum og fleiri spunamönnum, þótt það hafi verið fyrir tíma hinna auglýstu spunakvölda.

Þú viðurkennir sjálfur að fullt af þessum spuna sé drasl. Það er einmitt það sem ég var að gera honum grein fyrir, en hann brást við með því að hefja þessa tónlistarástundun á stall gagnvart þeirri tónlist sem ég hef fengist við á síðustu misserum.

Góðan skilning og tilfinningu fyrir tónlist, já, en að setja tæknilega hæfni sem skilyrði fyrir góðum spunamanni er að mínu viti ekki rétt.

Af hverju leggurðu þetta að jöfnu? Tæknileg færni þarf alls ekki að vera forsenda þess að hafa góðan skilning og tilfinningu fyrir tónlist og ég hef aldrei haldið því fram. Miklu frekar gagnrýni ég ýmis tæknitröll fyrir einmitt skortinn á þessu tvennu. En ég gagnrýni líka ýmsa þá sem fela skort sinn á skilningi og tilfinningu í spunaástundun, enda ætla ég að þessir ágallar hafi orðið til þess að þeir hafi ekki náð árangri í hefðbundnari tónlist.

Skort á skilningi og tilfinningu er auðveldast að fela í formleysu, því innan forms verður hann hverjum manni ljós um leið. Sanslausu tæknitröllin eru því undir sömu sök seld og kunnáttuleysingjarnir þegar kemur að spuna - alger blinda á samspil, framvindu, spennu og lausn.

Nei, það vakti síður en svo fyrir mér að hefja tæknikunnáttu á stall. Það eina sem ég hef á stall er næmnin og tilfinningin.

Og hana hefur skort í þeim spuna sem ég hef hlýtt á og tekið þátt í á þeim vígstöðvum sem þessi vinur okkar hefur staðið fyrir. En kannski var ég bara óheppinn að hitta einmitt beint á vondu mómentin.

Endilega bentu mér á upptökur þarna á síðunni sem þér finnast góðar.

Birgir Baldursson 23.08.2005 klukkan 16:32#

- - - 0 0 0 - - -
Það sem mér fannst vera upphafning tæknikunnáttu var þessi setning:

"Spuni er eitt erfiðasta tónlistarform sem hægt er að ástunda og því veltur útkoman algerlega á því að þeir sem spinni hafi öfluga getu í tónlist og góðan skilning."

Og aftur gleðst ég yfir því að við erum sammála um þetta með tæknitröllin og næmnina, hélt nefnilega að svo væri en skildi þetta á þann veg sem sést að ofan.

Dæmi af því sem til er sem mér hefur líkað við OG er búið að vinna, því miður er til slatti af efni sem ekki hefur verið unnið en er til sem hráar upptökur.

Guðmundur frá Háeyri

Summertime Of lengi í gang en batnar þegar á líður.

Þríraddað bassasóló

Ég er auðvitað hlutdrægur og týni bara til hluti sem ég kom að sjálfur, það er annara að draga fram sína sköpun :) Og mér finnst þetta á engan hátt fullkomið, ekkert af þessu en það er eitthvað sem mér líkar í því öllu.

En nú ætla ég að kúpla mig útúr þessari umræðu, hef bara ekki tíma í þetta á þessum árstíma, vefsmíðahandbók sem er orðin overdue fyrir þessa önn auk viðskiptavina sem þarf að sinna.

Enn og aftur, ákaflega glaður að sjá að við erum sammála um hvað það er sem skiptir máli í tónlistarsköpun. :)

Gunnar 23.08.2005 klukkan 22:59#

- - - 0 0 0 - - -
Það hét nú kall og svar hérna í old days....
Passið að "spuna" ekki í brækurnar
Þetta "hljómar" eins og gullin SPUNA yfir hvorn annannnn.....

......... 23.08.2005 klukkan 23:22#

- - - 0 0 0 - - -
Þetta er rétt hjá herra Birgi Það er ansi mikið af þessum spunasnobburum hér á klakanum

Einar Bragi 11.09.2005 klukkan 23:57#

- - - 0 0 0 - - -
Og því til stuðnings bendi ég á http://no.hysing.org/spuni/Spunakvold14.sept2005/

Gunnar 17.09.2005 klukkan 01:22#

- - - 0 0 0 - - -
Excuse me, if you play music, you want people to listen to it, right? There's no point playing into a vacuum.

Keith Richards

Birgir Baldursson 02.10.2005 klukkan 15:26#

- - - 0 0 0 - - -

Prjónaðu við









Muna þig?






birgir.com