Föstudagur 23. september 2005

Að nýta vopn andstæðinganna

Einhver fallegasti þáttur mannlífins að mínu mati felst í því þegar úthrópaðir þjóðfélagshópar taka upp háttu kúgara sinna og byrja að nota hin niðrandi orð um sig sjálfir. Þegar vopnin eru slegin úr höndum fordómapúkanna með þessum hætti er ekki annað að sjá en að það dragi umtalsvert úr andúðinni.

Skýrasta dæmið eru hommar og lesbíur. Ég man eftir þeirri umræðu íslenskufræðinga að taka upp orðin hómi og lespa yfir þennan þjóðfélagshóp, enda voru hin orðin hlaðin fyrirlitningu. „Djöfulsins hommi ertu“ var notað í tíma og ótíma, jafnvel bara gegn þeim sem þóttu ekki alveg nógu kúl í framgöngu.

Ég man til dæmis eftir því þegar við strákarnir í Bless vorum nýbúnir að uppgötva Spaugstofuna og karakterinn „Kristján heiti ég Ólafsson“. Eitthvert laugardagskvöldið, þegar stefndi í eitt af þessum lokuðu viskífylleríum okkar þar sem Magical Mystery Tour snerist á fóninum út í það óendanlega, settumst við niður til að horfa á Spaugstofuna. Ari bassaleikari hafði aldrei áður séð Kristján Ólafsson og þótti mikið til koma. “Djöfulsins hommi er þetta“ gargaði hann þegar Kristján gerði sig líklegan til að ríða páskaeggi eða eitthvað.

Svona voru þessir tímar.

En svo fóru samkynhneigðir bara að nota þessi orð yfir sjálfa sig eins og ekkert væri. Og maður hefur meira að segja heyrt þá nota orðið kynvillingur hver um annan, auðvitað í húmor, en þar með hafa þeir upprætt hina niðrandi merkingu. Og í dag finnst fáum eitthvað athugavert við samkynhneigða og orðin hommi og lesbía eru bara skilgreiningarorð á ný.

Þetta gera blökkumenn í Los Angeles líka þegar þeir ávarpa hver annan með orðinu „nigger“. Og á Vantrú köllum við okkur sjálf vantrúarseggi. Ég get vel séð fyrir mér að þessi aðferð geti nýst öðrum hópum sem þurfa að kljást við fordóma og niðrandi orðalag. Sjáið til dæmis fyrir ykkur tvær vinkonur með austænt yfirbragð segja við skólafélaga sína: „Við hrísgrjónin ætlum í bíó í kvöld, vill einhver koma með?“

Birgir Baldursson kl. 15:32 - efni: almennur heilaspuni -



Viðbætur
LoL ,góður þessi með hrísgrjónin!!!

Skrudda 23.09.2005 klukkan 23:31#

- - - 0 0 0 - - -
Sammála þér, Biggi. Það er mikill styrkur að geta nýtt sér vopn andstæðinganna. Oscar Wilde lét t.d. þessa hugsun ekki framhjá sér fara. Gott dæmi er líka þegar verslingar syngja með eða jafnvel af fyrrabragði hið sígilda lag "Hommar í Versló" í keppnum milli þeirra og annara skóla ekki síst þegar MR á í hlut. Það lag er auðvitað í gríni gert enþað missir óneitanlega missir það nokkuð broddinn þegar verslingar eru farnir að syngja það líka. En það verður þá kannski til að auka á húmorinn og efla jákvæð tengsl milli skólanna.

Einar Steinn 25.09.2005 klukkan 20:50#

- - - 0 0 0 - - -
Já, svo tölum við stelpurnar um hvor aðra sem kerlingar. Tjéllingar. Kellur... Niggah

Maggabest 28.09.2005 klukkan 15:36#

- - - 0 0 0 - - -
Hér er nýtt orð yfir þig Biggi sem væri alveg tilvalið að þú færir að nota um þig... fordómageðsjúklingur... nokkuð gott ha?

Annað: helvítislygasækó..... endilega notaðu það svo fordómarnir minnki í þinn garð.

lalli 30.09.2005 klukkan 03:39#

- - - 0 0 0 - - -
Já já, Lárus minn. Ég er geðsjúkur fordómapúki og illmenni. Ánægður?

Birgir Baldursson 30.09.2005 klukkan 17:18#

- - - 0 0 0 - - -
...nei ég er nú ekkert ánægður með það.
Reyndar er þetta svar hjá þér fullkomin staðfesting á efni pistilsins. Þessu átti ég ekki von á og brosi út í annað. Afsakaðu leiðindi mín, stundum ræð ég ekki við mig.

lalli 01.10.2005 klukkan 00:49#

- - - 0 0 0 - - -
Fltt grein hjá þér kæri guðleysingi :-)

Þorkell 01.10.2005 klukkan 15:56#

- - - 0 0 0 - - -
Takk.

Birgir Baldursson 01.10.2005 klukkan 16:35#

- - - 0 0 0 - - -
Lalli þú ert auðvitað bara fordómageðsjúklingur. Leitaðu þér hjálpar maður, áður en það verður of seint.

Elvar 04.10.2005 klukkan 03:21#

- - - 0 0 0 - - -
Mjög góð pæling :]
Nörd er annað dæmi um orð sem hefur fengið jákvæða merkingu

Birna 14.10.2005 klukkan 16:45#

- - - 0 0 0 - - -

Prjónaðu við









Muna þig?






birgir.com