Fimmtudagur 29. september 2005

Eip-Elvis

Minni á Elvis-sjóið hans Friðriks Ómars, Las Vegas-stæl, á Broadway á föstudaginn. Ég ætla alveg að eipa þarna á settið.

Birgir Baldursson kl. 01:28 - efni: tónlist -



Viðbætur
OOOhhh er það á fokkíngs morgunnnn?!! Djöfullinn ég er að fara í ammæli á Skaganesi. Mamma er sjö-tíu.

Skrudda 30.09.2005 klukkan 01:20#

- - - 0 0 0 - - -
Skilaðu kærri afmæliskveðju til hennar frá mér.

Birgir Baldursson 30.09.2005 klukkan 01:28#

- - - 0 0 0 - - -
Ég eipaði þarna aðeins of stíft, því þegar um það bil þriðjungur sýningarinnar var liðinn fór ég í gegnum bassatrommuskinnið. Upplifunin af því að horfa á bassatrommupedalinn sokkinn inn úr skinninu var skelfileg, fullt af lögum eftir og ekkert hægt að gera án þess að stoppa sýninguna af.

En þetta gat reyndar ekki gerst á heppilegri tíma í sjóinu. Hið eiginlega Elvis-sjó var þrískipt og brotið upp með tveimur söngkonum sem sungu reyndar Elvis-lög líka. Og það var akkúrat í lok seinna lagsins hjá Heiðu Idol sem ég sprengdi skinnið. Í kjölfarið kom einmitt kynnirinn inn á sviðið og honum tókst að tala nógu lengi til að Halli Gulli, sem var á slagvekinu, næði að teipa fyrir mig skinnið saman. Takk Halli Gulli, þú reddaðir kvöldinu.

Og þannig hélt það út sýninguna, en helvíti var þetta mikið sjokk!

Birgir Baldursson 01.10.2005 klukkan 16:43#

- - - 0 0 0 - - -
Fyrir tilviljun rambaði ég hér inn hjá þér kæri félagi,....og sá fyrirsögnina "Eip-Elvis". Svona í tvær sekúndur hélt ég að þarna ætti að tala um sænska Elvis ofurklónið Eilert Pilarm.
.....Svo las ég áfram..........
Hvað um það, ég bara verð að deila með ykkur þessum brilliant listamanni , a must-hear.

Njótið vel

(Hey af hverju var HalliGulli að teipa skinnið fyrir þig,....var sjokkið svona rosalegt.. :) )

http://eilertpilarm.to/

http://www.algonet.se/~pergunne/eilert.html

AriE 04.12.2005 klukkan 22:22#

- - - 0 0 0 - - -
Halli Gulli er öðlingur og svo vildi til að hann átti teip tiltækt. Hann réðst á skinnið um meðan ég gerði kynni og Friðriki Ómari viðvart um þetta slys. Mínútu síðar gat svo sjóið haldið áfram.

En já, ég var mjög sjokkeraður.

Birgir Baldursson 06.12.2005 klukkan 23:40#

- - - 0 0 0 - - -

Prjónaðu við









Muna þig?






birgir.com