Stalkaður
Það var svo sem við því að búast að maður yrði ofsóttur af andlega vanheilu fólki við það að úttala sig opinskátt um viðkvæm mál, eins og ég geri oft á Vantrú.
Maður er nefndur Lárus Páll Birgisson, fermingarfræðari hjá Þjóðkirkjunni og sjúkraliði á Landspítalanum. Þessi drengur byrjaði fyrir meira en ári að kommentera grimmt á greinar okkar á Vantrúarvefnum, rétt eins og margir þeir aðrir sem ekki eru sammála skoðunum okkar.
Það út af fyrir sig er hið besta mál, til þess er nú vefurinn einu sinni gerður.
En fljótlega byrjuðu hlutirnir að taka á sig dökka mynd. Lárus hætti fljótt að tjá sig um efnisinnihald greinanna sem þarna eru og byrjaði þess í stað að ráðast að persónum þeirra sem þarna skrifa. Skeyti eftir skeyti frá honum fjallaði ekki um annað en hvað við værum fordómafullir og hversu lítið okkur hugnaðist að ræða við þá sem eru ósammála okkur.
Gott og vel, maðurinn fékk sín tækifæri til að láta þessa skoðun í ljós, þrátt fyrir að ekki tengdist það á nokkurn hátt efni greinanna. En að lokum kom að því að ekki var við þetta búið, því hver gagnleg umræðan á fætur annarri strandað á þessum flóðbylgjum hans af aðdróttunum og dylgjum.
Við lokuðum á hann.
En ekki lét hann sér segjast við það, heldur byrjaði að pósta undir alls kyns fölskum netöngum, þótt skýrt væri tekið fram undir hverri grein að slík sé ekki liðið. Og þráhyggjulegar ásakanirnar hafa síðan fengið á sig sífellt geðsýkislegri mynd. Hann byrjaði svo að pósta þessum ófögnuði undir blogg einstakra Vantrúarseggja. Umræðan hér er ágætis vitnisburður um málflutninginn og allir ættu að geta séð hvers vegna ég lokað fyrir hann á þessu vefsetri líka.
En hann er kominn aftur og nú enn fanatískari og sjúklegri en fyrr:
Ps. mikið er nú gaman að vera kominn úr sumarfríi og hafa næstu 11 mánuði til hæðast að ykkur lygurunum.... he he he
Og hérna:
Hér er nýtt orð yfir þig Biggi sem væri alveg tilvalið að þú færir að nota um þig... fordómageðsjúklingur... nokkuð gott ha?
Annað: helvítislygasækó..... endilega notaðu það svo fordómarnir minnki í þinn garð.
Þótt ég hafi bannað Lárus Pál á þessari síðu dettur mér ekki til hugar að eyða þessum kommentum. Ég ætla að leyfa þeim að standa og líta á frekari sendingar frá honum sem félags- og sálfræðilega rannsókn á þessari andlegu veilu sem þarna er í gangi.
Gjörðu svo vel, Lárus Páll, þessi vettvangur er þinn.
Hér eru svo fleiri ný dæmi um þessa sjúklegu áráttu mannsins.
Bara svona ein af mínu geðveiku pælingum. lalli 01.10.2005 klukkan 00:44#
Hugsýki er ekki geðveiki. Þú ert með okkur á heilanum og áráttan felst svo í þessum sífelldu ómálefnalegu árásum.
En ég segi reyndar að árátta þín taki á sig æ geðveikislegri mynd. Það er svona „figure of speech“. Þú verður sífellt óhugnanlegri í þessari sjúklegu baráttu þinni.
Birgir Baldursson 01.10.2005 klukkan 01:05#En nóg um mig og mína breyskleika. Pælum nú aðeins í þér Birgir og vinum þínum á vantru.net. Er þú líka haldinn þráhyggju eða á skilgreiningin ekki við í þínu tilfelli?
Ef við gefum okkur það að fjöldi innleggja, greina og svara sé í beinu samhengi við þráhyggju viðkomandi..jah hvar stendur þú þá gagnvart Guði og kirkjunni?
Getur verið Birgir að skrif þín um trúmál jaðri við þráhyggju?
Eftir þig liggja hundruðir, ef ekki þúsundir, greina og svara um trúmál vítt og breytt um hina íslensku netmöskva. Ekki skal ég segja hvursu lengi þú hefur staðið að þessari iðju en eitt veit ég og það er það að þú hefur enn nokkura ára forskot á mig.
Ekki einasta brennur í þér sú hvöt að boða þennan alheimssannleika um kuklið og yfirnáttúruna heldur sérðu tengsl í trúmál þó engin séu. Eitt dæmið um þetta er ljósmynd af illa útlítandi sári á tánni hans Matta Á á þeirri góðu heimasíðu orvitinn.com.
Innlegg þitt um myndina var eitthvað á þá leið að andlit Maríu meyjar, þeirrar ágætu konu, blasti við í sárinu. Ég geri mér grein fyrir því að það hafi örlað fyrir kaldhæðni í innskoti þínu (allavega vona ég það) en þrátt fyrir það gefur þetta dæmi góða innsýn í það hver hugarfóstur þín eru.
Eitt annað sem vert er að nefna í sambandi við þessi ummæli þín:
"Þú ert með okkur á heilanum...."
...og þá ertu væntanlega að tala um ykkur félagana í öfgasöfnuðinum vantrú.net. Þetta er ekki rétt Birgir. Nær væri að tala um að ég væri með þig, Matta, Óla, Véstein, og Björn Darra á heilanum. Um aðra meðlimi vantrúar veit ég sossum ekkert um en það er aldrei að vita nema þráin í þá láti á sér kræla í framtíðinni.
Já og meðan ég man þá var búið að fjalla um mig á vantru.net löngu áður en ég vissi af tilvist ykkar..... hver er svo með þráhyggju?
Afskaplega eru þetta dæmigerðir útúrsnúningar hjá Lárusi Páli. Það var minnst á hann á Vantrú hér. Það var nú öll þráhyggjan.
Matti 01.10.2005 klukkan 11:46#Og þetta með Maríumyndina á tánni á Matta var grín. Þegar þessu var slengt þarna inn hafði nýlega selst á eBay ristað brauð með meintri Maríumynd á fullt af dollurum og við höfðum haft það í flimtingum á einkaspjallinu okkar.
Birgir Baldursson 01.10.2005 klukkan 14:33#Þorkell 02.10.2005 klukkan 03:02#
Hverju hefur hann áorkað með málstað sínum?
Matti 04.10.2005 klukkan 09:12#


Ég skil vel að þú skulir ekki sjá annað ráð vænna en að loka fyrir aðgang manns sem lætur ekki skipast við endurteknar áminningar. Það er leiðigjarnt til lengdar að sitja undir ákúrum um að maður sé geðsjúkur. Það er sammannlegt.
Binni 30.09.2005 klukkan 23:35#