Miðvikudagur 02. nóvember 2005

Afhremmaður

Tölvuhremmingar mínar náðu hámarki sínu í vikunni. En nú er þeim lokið.

Ívar vinur minn gaukaði að mér gamalli Toshiba-fartölvu þegar gamla IBM-druslan dó og með hana að vopni tókst mér að þýða heila bók og halda sæmilegum netdampi. En ekkert umfram það.

Skjárinn á þessari tölvu tók svo upp á því þegar þýðingin var að klárast að dofna með einkennilegum hætti. Allt í einu var ekki hægt að horfa beint framan á hann því þá kom allt negatívt. Maður var að horfa á ská til að sjá eitthvað. Svo dofnaði hann meir og meir.

Á mánudaginn var hann orðinn alveg ónothæfur og þá vildi svo vel til líka að rafmagnklóin skaddaðist líka og ekki hægt að ræsa han upp lengur. Ég fór og keypti mér nýja, tölvulaus get ég ekki verið.

Hvílíkur unaður. En netbeinirinn minn tók upp á því að bila og því verð ég að netast á kaffihúsum núna. Voða mikið offlæn eitthvað. En það reddast vonandi á morgun.

Birgir Baldursson kl. 22:50 - efni: almennur heilaspuni -



Viðbætur

Prjónaðu við









Muna þig?






birgir.com