Mánudagur 02. janúar 2006

Barker og bókin

Fyrsta bloggfærslan mín, sumarið 2002 var um bók Dan Barker. Losing Faith In Faith. Þar segir:

Barst pakki frá amazon.com. Það áhugaverðasta í honum var "Losing faith in faith" eftir Dan Barker. Dan þessi var sannkristinn predikari sem fór í gegnum fimm ára innri baráttu þar sem frjáls hugsun tókst á við hinn boðaða algilda "sannleika" trúarinnar.

Keypti þessa bók ekki síst með það í huga að þýða hana. Og titill hennar ber mig strax að fyrsta vandamálinu:

Orðið trú á íslensku er ekki alveg það sama og orðið faith í ensku. Það sést best á því þegar maður lendir í rökræðum um trú og trúleysi: "Þú hlýtur að trúa á eitthvað, það trúa allir á eitthvað... trúirðu t.d. ekki á eigin mátt og megin?" og þar fram eftir götum.

Okkur vantar sambærilegt orð við faith í íslenskuna, því orðið trú er eiginlega sama orðið og belief.

Núna, þremur og hálfu ári síðar sest ég niður og byrja á þýðingunni, kominn með leyfi frá Barker og hvað eina. Stefnan er sett á að bókin verði komin út fyrir alþjóðlegu ráðstefnuna sem guðleysingjar halda í Reykjavík næsta sumar. Dan Barker er þar á meðal fyrirlesara og því gefst varla betra tækifæri til að koma þessari bók á innlendan markað.

Sagan hans er stórmerkileg, en skrif hans um kristindóminn og Biblíuna eru ekki síðri.

Nú er bara að sjá hvort þetta hafist ekki. Í ljósi þess að Steinarnir tala tók ekki nema fjórar vikur (reyndar í botnlausri geðveiki) ætti þetta að vera tilbúið til prentunar í síðasta lagi í lok mars, miðað við að ég flýti mér hægt. Set hér með deddlæn á 1. apríl

Birgir Baldursson kl. 22:08 - efni: trúmál -



Viðbætur

Prjónaðu við









Muna þig?






birgir.com