Svefntruflanir
Alveg frá áramótum ef ég verið fórnarlamb insomníu einhverskonar. Mér virðist vera orðið fyrirmunað að verða mér út um almennilegan nætursvefn.
Sofnaði klukkan rúmlega 12 í kvöld og var vaknaður aftur upp úr tvö. Er búinn að vera vakandi síðan og ekki vitund þreyttur. En ég finn að hugarstarfið er samt ekki með skarpasta móti.
Maður reynir að berja sig niður en ekkert gengur. Mig óar við að þurfa að kenna heilan vinnudag, frá tólf til átta, uppi á Skaga, vitandi að þreytan og syfjan eiga eftir að kikka inn síðdegis.
Dottaði milli nemenda upp í Grafarvogi í dag og dreymdi eitthvert fáránlegt rugl. Hausinn á mér er þreyttur að fá ekki nægan REM-svefn.
Ætli þetta helgist ekki af því að ég var kominn í Drakúla-syndrómið um jólin, svaf á daginn og vakti á nóttunni. Eini munirinn er sá núna að ég vaki á nóttunni og verð að vaka á daginn líka til að sinna störfum mínum. Og a daginn er aldrei friður eða laus stund, þéttbókuð stundatafla.
Þetta er erfitt.
Mæti á NFS á eftir, í morgunsjónvarpið til að tala um líf eftir dauðann. Vona að það komi ekki bara eitthvert svefnrofarugl upp úr mér.


