Harmleikurinn
Ég treysti mér ekki til að bæta mér í þann hóp sem úthrópar DV af svo mikill hörku. Þetta ber einfaldlega of mikinn keim af galdrafári og krossfestingalosta. Geri frekar þessi skynsamlegu orð Marðar Árnasonar að mínum:
„Harmleikurinn á Ísafirði er þess eðlis að núna eigum við að sýna stillingu og tillitssemi. Við vitum ekki hverjar aðstæður voru, vitum ekki hvernig sjálfsvígið bar að, vitum ekki um atburðarás sem á undan fór. Látum lögregluna og Blaðamannafélagið rannsaka málið, leyfum aðstandendum öllum að ná sér eftir atburðinn. Ræðum málið síðan af yfirvegun og í alvöru.
Þessvegna ætla ég ekki, að minnsta kosti að sinni, að rita nafn mitt undir netáskorun þar sem sökudólgur hefur þegar verið fundinn og skal refsað strax.
Ég skrifa ekki heldur undir áskorunina.
Mynd- og nafnbirting við slíkar aðstæður er aftur eitthvað sem þarf að ræða og meta. Mér finnst slíkt auðvitað álitamál, sér í lagi svona á fyrstu stigum málsins. En ég get ekki tekið undir með þeim sem segja ásökun eða dóm yfir manninum felast í fréttaflutningi DV. Ásökunin liggur hjá kærendunum.
Það hlýtur auðvitað að vera ömurlegt að vera bendlaður saklaus við barnanauðganir, en ef við treystum á réttarkerfi okkar ætti hið sanna að koma í ljós um síðir og þá liggja þeir sem kærðu í súpunni en okkar maður stendur með pálmann í höndunum. Hinn saklausi maður gæti þá auðveldlega sótt kærendur sína til saka fyrir mannorðsmorð og allt það. En mannorðsmorðið getur aldrei legið hjá fjölmiðlinum, nema hann á fyrra bragði haldi því fram að viðkomandi sé sekur.
Og það gerði DV ekki.
Birgir Baldursson 13.01.2006 klukkan 00:56#Þetta mál er aðeins drastísk viðbót við fjölda annarra mála þar sem DV hefur farið yfir strikið í nafni "sannleikans". Þar sem mannorðsmorð hafa verið framin vegna sögusagna. Og þessi tiltekna frétt DV byggist einmitt fyrst og fremst á sögusögnum. Það stendur enda í fréttinni sjálfri.
Og Biggi minn. Þú segir: "kæra liggur fyrir og allt það". Eitt er að leggja fram kæru, annað er að ákæra. Höfum það á hreinu. Kæra er ekki fréttaefni. Allir geta kært allt. Ákæra er allt annar hlutur.
Frétt DV er absúrd, klaufaleg og vond. Burtséð frá því hvort viðkomandi hafi framið sjálfsmorð vegna hennar, eður ei.
Mér er fyrirmunað að skilja þá sem ætla sér að taka "side" DV í þessu máli.
Hinsvegar ber ávallt að varast múgæsing og hysteríu. Það er alveg ljóst.
Orri 13.01.2006 klukkan 02:28#Eins og ég segi:
Mynd- og nafnbirting við slíkar aðstæður er aftur eitthvað sem þarf að ræða og meta. Mér finnst slíkt auðvitað álitamál, sér í lagi svona á fyrstu stigum málsins.
Það er sá sem kærir (og ákærir) sem rænir þann ákærða mannorði sínu, annað hvort með réttu eða ekki. Höfum það á hreinu.
Birgir Baldursson 13.01.2006 klukkan 02:53#Annnars sé ég ekki pointið í að flytja fréttir af slíkum málum fyrr en þau hafa komið fyrir dóm.
Orri 13.01.2006 klukkan 03:03#Þetta er ekki rétt. Sá sem kærir er fullkomlega annar en sá sem að ákærir. Grundvallarmunur þar á. Og þetta er fúndamental atriði í málinu.
Ég ítreka: Kæra er ekki það sama og ákæra.
Orri 13.01.2006 klukkan 03:06#Og í ljósi þess ætla ég nú að skrifa undir áskorunina. Eru þá allir ánægðir?
Birgir Baldursson 13.01.2006 klukkan 03:13#

