Föstudagur 13. janúar 2006

Ef Jónas Kristjánsson...

...myndi svipta sig lífi núna, væri okkur þá stætt á því að úthrópa Hjálmar Árnason sem morðingja?

Birgir Baldursson kl. 01:30 - efni: almennur heilaspuni -



Viðbætur
Líklegast retorísk spurning :) en nei, vitanlega ekki, frekar en honum var stætt á því að úthrópa Jónas sem morðingja.

Stundum gjaldfella menn góðan málstað með gáleysislegu tali ... og skemma þannig fyrir hinum varfærnari verjendum þess málstaðar. Það er synd að sjá bommertu eins manns fundna öðrum til foráttu.

En svo við víkjum okkur að allt öðru ... ég hvet þig til að endurskoða hug þinn um hina hófsömu og varfærnislegu áskorun á Deiglunni! :)

Gulli 13.01.2006 klukkan 02:30#

- - - 0 0 0 - - -
Jamm, hver veit nema ég skrifi undir. En með því er ég þá aðeins að fara fram á að mynd- og nafnbirtingarpólisía blaðsins verði endurskoðuð, en ekki að halda því fram að einhver dómur (hvað þá dauðadómur) felist í umfjöllun þess á þessu hræðilega máli.

Birgir Baldursson 13.01.2006 klukkan 02:41#

- - - 0 0 0 - - -
já, nákvæmlega. Þessi hræðilegi atburður er í raun ekki aðalatriði mótmælanna heldur myndbirtingar og opinberar mannorðsaftökur löngu áður en dómar hafa fallið og nokkuð hefur sannast. Þetta er hvorki fyrsta né eina skiptið þó afleiðingarnar hafi kannski aldrei verið svona slæmar.

Ekki dettur mér í hug að ég viti hvort ásakarnirnar á hendur manninum voru sannar eða upplognar enda ekki á mínu færi að vita það, ekki þekkjandi neitt til. En það er ekki hlutverk fjölmiðla að dæma heldur.

Hvað er þetta annars með að fólk eigi rétt á að vita allan fjárann? Hvað gefur almenningi rétt á að vita hluti úr einkalífi Bubba eða annarra frægra persóna? Ég hef aldrei heyrt neinn rökstuðning fyrir því.

hildigunnur 13.01.2006 klukkan 08:46#

- - - 0 0 0 - - -
Fyrir utan það að ritstjórnarstefna DV er ekki eingöngu athugaverð fyrir óvarfærnislega umfjöllun um sakamál. Flestar forsíður blaðsins höfða til þeirrar tilhneigingar mannsins að smjatta á ógæfu annarra.

Fjölskylduharmleikjum hefur t.d. iðulega verið slegið upp á forsíðu. Þessháttar umfjöllun hefur ekkert fréttagildi en veldur óþarfa hugarangri hjá fólki sem á bágt. Hverra hagsmuni þykist DV vera að gæta með því?

Einnig getur sá sem einu sinni hefur komist á síður DV reiknað með því að vera hundeltur lengi á eftir og gerður að fréttamat í hvert sinn sem hann nagar neglurnar á almannafæri.

Ég skora á þig að skrifa undir Birgir. Það er ósk um breytt vinnubrögð en engin yfirlýsing um að þú, ég eða nokkur annar vilji taka þátt í persónulegum ofsóknum.

Eva 13.01.2006 klukkan 10:23#

- - - 0 0 0 - - -
Fjölskylduharmleikjum hefur t.d. iðulega verið slegið upp á forsíðu.

það veit ég aftur á móti ekkert um, enda kaupi ég aldrei DV. Bara svo það sé á hreinu.

Birgir Baldursson 13.01.2006 klukkan 15:00#

- - - 0 0 0 - - -
ekki ég heldur en maður getur ekki annað en séð forsíðurnar, nógu stórar eru þær uppi á vegg í Bónus.

hildigunnur 13.01.2006 klukkan 15:24#

- - - 0 0 0 - - -
Bjánus, Hildigunnur, Bjánus

skrudda 15.01.2006 klukkan 13:42#

- - - 0 0 0 - - -

Prjónaðu við









Muna þig?






birgir.com