Sjóndapur ritstjóri sagður myrða með pennanum
Jæja, þá er Bubbi Morthens búinn að bæta sér í móðursýkiskór þeirra sem saka ritstjóra DV um morð. Hann kann að haga seglum eftir almenningsálitinu hverju sinni og notar svona upphlaup til að gefa alþýðunni nákvæmlega það sem hún vill heyra. Alþýðuhetjan Bubbi.
Ef Jónas Kristjánsson myndi farga sér núna, eftir að hafa verið úthrópður morðingi, ætti það samkvæmt fordæminu að gerast að ég verði úthrópaður sem morðingi hans, enda er ég hér að segja fréttir af ásökunum Bubba og Hjálmars Árnasonar á hendur Jónasi, án þess að ákæra hafi verið lögð fram eða dómur fallið.
Hugsið um það. Greining gærdagsins hjá mér var skökk.
bjóst einhver við öðru frá Bubba eftir því sem hann hlýtur að vera eiturfúll út í DV?
þetta er nú ekki besta lagið hans, eina sem mér finnst flott í því er að hann skuli sleppa slagi úr þegar viðlagið kemur. Allt allt of mörg erindi líka...
- - - 0 0 0 - - -
Innihaldið dæmir sig sjálft en auk þess er þessi texti einhver mesti hroði sem ég hef séð lengi, í bókmenntalegum skilningi. Hann ber þess öll merki aðhafa verið soðinn saman í fljótheitum, ekki af ástríðu heldur einhverjum allt öðrum hvötum.
- - - 0 0 0 - - -
Hvaða rugl er þetta, Bubbi er reiður og Bubbi segir það sem honum finnst. Það hefði svo sem mátt hafa verið meiri dýpt í þessu hjá honum, t.d.
Þeir sem ofsóttu eru nú ofsóttir
þeir sem krossfestu krossfestir
og það erum við sem höldum á hamrinum – allir sáttir?
Eitthvað svona.
Annars datt mér þú dálítið í hug þegar talað var um trúarfíkn í Speglinum um daginn. Tékkaðu á því...
Roll og fjöll!
G
- - - 0 0 0 - - -
Trúarfíkn? Er ég haldinn henni? Einhverntíma var það borið upp á mig og félaga mína að við værum haldnir trúarfælni. Hvort skyldi það vera?
Þarf það kannski nokkuð að vera afbrigðlegt ástand að láta boðun hindurvitna og kjaftæðis fara í taugarnar á sér og vilja berjast gegn því? Mér finnst slíkt átlúkk á heiminn einmitt mjög heilbrigt.
- - - 0 0 0 - - -
Já já, en það kom í niðurlagi þessa pistils að þeir sem væru trúlausir gætu líka verið haldnir trúarfíkn. Hlustaðu bara.
- - - 0 0 0 - - -
Ég vil sjá rökstuðninginn fyrir því áður en ég fæst til að kaupa slíka fullyrðingu. Áhugasemi okkar Vantrúarmanna um trúmál er allt annars eðlis en ánetjun trúmannanna, það er mér löngu orðið ljóst. Við erum í nákvæmlega jafnmiklu trúarrugli og Árni Helgason í Stykkishólmi er í áfengisvímu.
- - - 0 0 0 - - -
Prjónaðu við
þetta er nú ekki besta lagið hans, eina sem mér finnst flott í því er að hann skuli sleppa slagi úr þegar viðlagið kemur. Allt allt of mörg erindi líka...
hildigunnur 13.01.2006 klukkan 15:23#