Fimmtudagur 19. janúar 2006

Mellotron

Ég verð á Nasa í kvöld að spila undir hjá MR-ingum sem etja kappi í undankeppni söngkeppni framhaldsskólanna.

Lögin eru misjöfn og flytjendurnir líka. Eitt lagið fer beinlínis í taugarnar á mér, Total Eclypse Of A Heart með Bonnie Tyler. En öfugt við Tyler er það fullkomlega þolanlegt í meðförum keppendanna, þrátt fyrir að ekki sándi þeir neitt ofuratvinnumannslega. Ég bara þoli ekki Bonnie Tyler, þá örmu væluskjóðu.

Ég er hins vegar alveg að fíla Spice Girls og Dionne Warwick. Buckley er ágætur líka, trommuleikurinn í laginu Lover You've Should Come Over er töluvert í mínum stíl, lagið dýnamískt og gaman að fást við það.

En besta lagið á prógramminu er tvímælalaust Bowie - Space Oddity. Ég er að hlusta yfir lögin núna og mellotronið hjá Bowie hefur sterk geðræn áhrif á mig, þriðji hljómurinn í fyrsta kórus mest. Dásamleg teipfelskja.

Djöfull vildi ég að ég ætti eitt svona stykki!

Birgir Baldursson kl. 03:40 - efni: tónlist -



Viðbætur
Þú getur það næstum því. G-force, sem eru 2 breskir strákar á svipuðu reki og við, eru búnir að gera software útgáfu af mellotron - sem þeir kalla m-tron. Þeir eru búnir að yfirfæra á stafrænt form öll þau teip sem þeir komust yfir - bæði þau sem fylgdu með græjunni og síðan hafa þeir fengið hjá Rick Wakeman, hljómborðsleikaranum úr Pink Floyd (Wright), Radiohead og fleirum. Hver nóta sömpluð fyrir sig og ekkert lúpp. Þetta er bara eins og það hljómaði úr Mellotron - alyndislegt. Fæst hjá oss í búð tóna :)

jon kjartan 19.01.2006 klukkan 03:40#

- - - 0 0 0 - - -
Er felskjan til staðar í þessum sömplum?

Birgir Baldursson 19.01.2006 klukkan 03:40#

- - - 0 0 0 - - -
test

bb 19.01.2006 klukkan 03:40#

- - - 0 0 0 - - -

Prjónaðu við









Muna þig?






birgir.com