Nýtt blogg
Tókst ekki að uppfæra vefumsýslukerfið þannig að gamla bloggið væri áfram inni. Það verður því hér með opnað sem safn, gjörið svo vel.
En ég er semsagt kominn aftur í loftið.
Tókst ekki að uppfæra vefumsýslukerfið þannig að gamla bloggið væri áfram inni. Það verður því hér með opnað sem safn, gjörið svo vel.
En ég er semsagt kominn aftur í loftið.
Það verður ærið verkefni að koma þessu bloggi á eitthvert nothæft form. Ætli mitt fyrsta verk verði ekki að skipta út leitarglugganum hér til hægri fyrir annan frá Google, sem leitar um allt setrið, bæði gömul blogg og ný.
Svo væri ekki úr vegi að smíða einhverja flokka utan um allt orðagjálfrið.
Í dag eru fjögur ár síðan ég hóf að blogga, en þá var ég nýfluttur til Danmerkur.
Mæli með tæpitunguleysi greinanna hjá Leó M. Jónssyni. Svo eru þarna fróðlegar greinar sem eyða fordómum okkar almennings, t.d. í garð forstjóravörubílanna.
Ég hef kynnst mörgum gítarleikurum um ævina, en Tryggvi Hübner er sá fyrsti þeirra. Þau Unnur systir mín voru bekkjarsystkyni í gaggó og þegar ég var átta ára þurfti hún einhverju sinni að passa mig og litlu systur þegar foreldrar okkur brugðu sér af bæ. Og auðvitað hélt hún partí.
Það er ekki hægt að segja að bloggið á kirkjan.is sé sérlega áhugavert. Vikulega birtast pistlar sem heita nöfnum eins og Fjórði sunnudagur eftir þrenningarhátíð, Fimmti sunnudagur eftir þrenningarhátíð o.s.frv. Allt saman er þetta eitthvað óáhugavert rant um snilld einhvers löngu dauðs költleiðtoga, sem búið er að gera svo heilagan að allt sem hann sagði hlýtur að vera æðislegt.
Continue reading "Sjötti sunnudagur eftir þrenningarhátíð" »
Enn eitt talandi dæmið um skaðsemi trúarhugmynda:
Maður sem mætti til að mótmælanna með tvo unga syni sína sagðist hafa komið þar sem hann tryði biblíunni, sem segði að samkynhneigð væri synd, hann bætti við að ef samkynhneigðir fengju að hafa sínu fram ættu synir hans enga framtíð.
Ég hef varið nóttunni í að horfa á þættina Borgin mín á Skjánum. Þessir þættir eru varla hollir ístöðuleysingjum eins og mér, því nú engist ég og ólmast enn og aftur í þrá eftir að komast til og dvelja í menningu stórþjóðanna, ef ekki bara setjast þar að.
Tríóið Blóð samanstendur af sjálfum mér, Edda Lár og Þórði Högna. Hér er fyrsta platan okkar, tæplega 40 mínútna impró-leiðsla.
Hverjum tókst eiginlega að sannfæra allt og alla hér á Vesturlöndum um að aldrei skuli semja við hryðjuverkamenn? Sú fullyrðing er einhver sú heimskulegasta sem ég hef nokkru sinni orðið var við í málflutningi pólitíkusa.
This page contains all entries posted to birgir.com in júlí 2006. They are listed from oldest to newest.
ágúst 2006 is the next archive.
Many more can be found on the main index page or by looking through the archives.