« Nóg að gera | Main | Án hiks »

Fjögur ár

Í dag eru fjögur ár síðan ég hóf að blogga, en þá var ég nýfluttur til Danmerkur.

Ég ætlaði blogginu upprunalega að vera þjálfunarbúðir í ritlist og reyndi að færa eitthvað inn á hverjum degi. En þarna hafði maður ekki uppgötvað vefumsýslukerfi á borð við Movable Type og þurfti að handfæra allt inn, texta, kóða og jafnvel rss-skjal til að sjást á Rassmolunum. Þetta gat tekið á og það komu móment þarna fyrsta árið sem maður velti fyrir sér hvort maður ætti að nenna þessu yfir höfuð.

En svo tók maður Movable í þjónustu sína og allt fór að ganga betur. Það var svo ekki fyrr en nú í janúar, þegar ég ákvað að uppfæra umsýslukerfið, að allt fór í fökk og ekkert hægt að blogga. Mál stóðu þannig allt fram á síðustu daga að ég þorði ekki að koma nálægt þessu af ótta við að skemma og klúðra öllu gamla blogginu. Mér tókst að setja MT upp á ný en nú vildi það ekki kannast við gamla bloggið og það eina sem hægt var að gera var að henda gamla database-inu og byrja upp á nýtt.

Þennan tíma sem bloggið lá niðri komu endalaust móment sem mig verkjaði af bloggþörf, sér í lagi ef maður þurfti að bregðast við einhverju rugli þarna úti í samfélaginu. Í staðinn reyndi maður að nota kommentakerfi annarra, þ.e. ef þeir blogguðu um það sem hugur stóð til að tjá sig um. Ég er því óskaplega feginn að vera búinn að koma bloggvöllum mínum í gagnið aftur og veit sem er að þessi vettvangur verður mikið nýttur í framtíðinni.

Bloggið er ekki dautt, ég er rétt að byrja.

Viðbætur (4)

Buddy Rich:

Hvernig gengur með stúdíóið þitt? Er þetta kennsluhúsnæði/íbúð/upptökuver í einum bískúr eða eitthvað meira?

Þetta er svokallað project-strudio í gamla húsnæði Stúdíó Bjartsýni og Hljóðhamars. Bílskúr semsagt, sem ég nýti sem íbúðarhúsnæði líka þar til (ef) hagur vænkast.

Steinn Skaptason:

Ánægjulegt að þú er kominn aftur fram á ritvöllinn og hefur opnað aftur heimasíðuna þína. Fylgist nú með einsog áður.

Buddy Rich:

Þegar maður var yngri var markmiðið á hverju að komast eitthvert út. Burt úr hretinu og mónótóníunni. Síðan þá hefur margt breyst, og nú er ég alveg laus við þessa tilfinningu. Upplifi mig sem íslending en það eru eiginlega tilviljanir sem hafa ráðið mestu hvar ég hef hafnað. Heimurinn hefur líka breyst,netið allsráðandi og ekkert meira mál að búa erlendis en víðast hvar á Íslandi. Þessu getur fylgt visst fjárhagslegt óöryggi, en ekki meir en gengur og gerist.

Bættu við

Um þessa síðu:

Þessi síða hljóðar upp á eina bloggfærslu frá 20. júlí 2006.

Færslan á undan var Nóg að gera.

Næsta færsla á eftir er Án hiks.

Svo eru margar fleiri á forsíðunni og í safni gamalla færslna.

Powered by
Movable Type 3.31