« Fjögur ár | Main | Hübner »

Án hiks

Mæli með tæpitunguleysi greinanna hjá Leó M. Jónssyni. Svo eru þarna fróðlegar greinar sem eyða fordómum okkar almennings, t.d. í garð forstjóravörubílanna.

Viðbætur (1)

Hérna er svo að finna nýjustu pistla Leós og þar falla gullkornin í skæðadrífu:

,,Íslenska bjánanum" finnst enn fínt að búa í 101 Reykjavík og af því hafa margir drjúgar tekjur. Þar býr ,,íslenski bjáninn" í húsnæði sem er tvöfalt dýrara en það ætti að vera, greiðir tvöfaldan fasteignaskatt og greiðir daglega 1500 kr. stöðumælasekt, neyðist hann til að eiga bíl sem hvergi er til stæði fyrir. Á næturnar sefur hann með tappa í eyrunum til að heyra ekki ýlfrið, gólið og urrið í útúrdópuðum varúlfahópnum sem eðlar sig og skítur undir svölunum hjá honum - geti hann á annað borð sofið fyrir brothljóðum sem fylgja innbrotum í hús og bíla - eða vegna hræðslu við íkveikju.

Eða:

Það sem hafði þó mest áhrif á að annars gott uppeldi skilaði mér ekki sem ,,mætum borgara með staðlaða íslenska þrælslund", er að ég tilheyrði 68-kynslóðinni og bar ekki, frekar en margir jafnaldrar, tilhlýðilega virðingu fyrir ,,stofnunum þjóðfélagsins": Mitt mottó varð ,,Til andskotans með KERFIÐ" (Fuck- the Establishment - eins og sú veraldarspeki nefndist á ensku). Einkennisbúningar, hvort sem þeir eru tákn valdsins (t.d. sýslumenn) eða hégómans (t.d. flugmenn) - jafnvel mikið borðalagðir, vekja ekki hjá mér lotningu; mér finnst þeir hlægilegir og á skjön við íslenskan raunveruleika og ég vorkenni annars ágætum mönnum sem ekki eru idjót frá náttúrunnar hendi, að þurfa, starfs síns vegna, að klæðast slíkum umbúðum fælingar, hroka og yfirdrepsskapar.

Eða:

Mér kæmi ekki á óvart þótt selja mætti ,,íslenska bjánanum" líkklæði með vösum, líkkistur með dráttarkrók og aftanívagni og krítarkort sem hann gæti notað ,,hinu megin". Reyndar er ég sannfærður um að ekki er langt þar til við lesum opnuviðtal við fyrsta ,,íslenska bjánann" sem fjárfestir í líkkistu með sjónvarpi og bar.

Bættu við

Um þessa síðu:

Þessi síða hljóðar upp á eina bloggfærslu frá 20. júlí 2006.

Færslan á undan var Fjögur ár.

Næsta færsla á eftir er Hübner.

Svo eru margar fleiri á forsíðunni og í safni gamalla færslna.

Powered by
Movable Type 3.31