« Hatur byggt á trú | Main | Blóð »

Sovét-Ísland

Ég hef varið nóttunni í að horfa á þættina Borgin mín á Skjánum. Þessir þættir eru varla hollir ístöðuleysingjum eins og mér, því nú engist ég og ólmast enn og aftur í þrá eftir að komast til og dvelja í menningu stórþjóðanna, ef ekki bara setjast þar að.

Þegar ég bjó á Kanarí fyrir nokkrum árum naut ég þess mjög að versla í stórmörkuðunum þar. Kjötborðin voru t.d. gífurlega metnaðarfull, sprenghlaðin af alls konar góðmeti. Og jógúrtkælarnir voru margir metrar að lengd, með tugum, ef ekki hundruðum tegunda. Ég var alltaf að prófa einhver ný brögð og fannst ég búa í einhverju fríkhimnaríki lífsnautnanna.

Svo endaði maður aftur á Íslandi, þar sem úrvalið er jarðarberjajógúrt og jógúrt með trefjum, sama gamla gumsið með málmkennda óbragðinu. Ég dvaldi í viku á Spáni núna í sumar og fékk á ný að velta mér upp úr dásemdum stórverslana til þess eins að sjá hversu ömurlegar íslenskar matvörubúðir eru.

Við kannski áttum okkur ekki á því, sökum þess hve vön við erum orðin þessu ástandi, að Ísland er í þessum efnum algjört austantjaldsland, auk þess sem okrið á þessum fátæklegu landbúnaðarvörum er allt að drepa. Hvað eiga þessi innflutningshöft og þessi landbúnaðarstefna að fyrirstilla? Af hverju er þessi afturhaldssmáflokkur Guðna Ágústssonar endalaust með landbúnaðarráðuneytið í herkví?

Ég skil ekki heldur þau rök að ekki megi fllytja inn kjötvörur frá öðrum löndum. Við étum þær þegar við erum í útlöndum og ekki erum við sett í þriggja mánaða sóttkví í Hrísey þegar við komum til baka. Ef þessar vörur eru svona bráðsmitandi ættum við sjálf að vera fyrir löngu búin að höggva skörð í íslenska húsdýrastofninn, bara með ferðalögum okkar milli Íslands og hins vestræna heims.

Það er ekki eins og verið sé að flytja inn lifandi dýr.

Sjáið þáttinn um Barcelona sem byrjar á ferðalagi um matvörudásemdir Katalóníu. Sjáið t.d. allar ómótstæðilegar pylsurnar sem hanga þarna, katalónskar pylsur. Af hverju er ekki hægt að bjóða upp á þetta hér? Af hverju verðum við að láta okkur nægja íslenska osta? Guðni, af hverju hefurðu af okkur dásemdir heimsins með þessari sovésku bjúrókrasíu? Í Barcelona geta menn keypt íslenskan bakkaló!

Sovét-Ísland, þrjóska landið, hvenær hverfur þú?

Viðbætur (7)

Buddy Rich:

Lifirðu ekki aðallega af þýðingarvinnu? Þá getur þú búið hvar sem er.

Nei, ég lifi alfarið af spilamennsku og kennslu. En það ætti svo sem að vera auðvelt fyrir mig að rífa mig upp, einstæðingur sem ég er, en ég veigra mér þó við því að gera sömu mistök og síðast, að æða út án þess að hafa að einhverri vinnu að hverfa.

Ég væri til í að eyða restinn af lífinu á endalausu tónleikaferðalagi.

Buddy Rich:

Tja, þú getur sest á uppá hjólið þitt með GPS og kjuðana og pedallað frá Berlín til Moskvu. Tekur líklega fjórar vikur. Kannski grefur þú upp einhver spiladjobb á leiðinni? Það er nógu brjálað til að eitthvað forlag kaupir ferðasöguna.

Yndisleg hugmynd!

Hér sér maður svart á hvítu hvernig mér fannst að koma heim eftir að hafa búið í Danmörku og á Kanarí. Ísland er ömurlegt land til að búa á.

Buddy Rich:

Því fleiri lönd sem vér sáum því betur sjáum við í gegnum Ísland.

Buddy Rich:

Hljóðbækur eru í vöxt og það ætti að passa inní þessa stúdíóvinnu. Biblían ku vera vinsæl í þessu formi...

Bættu við

Um þessa síðu:

Þessi síða hljóðar upp á eina bloggfærslu frá 23. júlí 2006.

Færslan á undan var Hatur byggt á trú.

Næsta færsla á eftir er Blóð.

Svo eru margar fleiri á forsíðunni og í safni gamalla færslna.

Powered by
Movable Type 3.31