Þegar ég var fimm ára gat ég á jólunum þulið upp hvað allir höfðu fengið í jólagjöf árið áður. Minnið hjá mér var fríki og fjölskylda mín kallaði mig rafmagnsheilann.
Ég gat munað fáránlegustu hluti með mikilli nákvæmni og var sífellt að leiðrétta aðra sem mundu hlutina vitlaust. Ég skildi ekki hvernig aðrir gátu verið svona fljótir að ruglast í endurminningunum og eftirgrennslan leiddi það alltaf í ljóst að ég hafði rétt fyrir mér.
Þessi hæfileiki entist mér eitthvað fram eftir bernskunni og olli því að ég man enn stundartöfluna og nöfnin í kladdanum þegar ég var sjö ára. En ætli þetta ofurminni hafi ekki farið að rjátlast af mér upp úr því og í dag hef ég skelfilega lélegt minni. Ég man ekki einu sinni hvað ég fékk sjálfur í jólagjöf um síðustu jól, ef það var þá eitthvað. Rámar þó í konfekt og kannski rauðvínsflösku.
Þetta er hræðilegt.
Viðbætur (3)
Blessaður vinur! Heyrðu, þú skuldar mér enn 50k fyrir giggið hérna um árið. Nokkuð búinn að gleyma því...?
Viðbætari: Elvis | 01.08.06 07:23
Posted on ágúst 1, 2006 07:23
Sannaðu það.
Viðbætari: Birgir Baldursson | 01.08.06 09:31
Posted on ágúst 1, 2006 09:31
Jæja, þú færð að njóta vafans í þetta skiptið. Búinn með jólakonfektið?
Viðbætari: Elvis | 01.08.06 09:38
Posted on ágúst 1, 2006 09:38