Lagði mig í smá stund áðan og tókst að bæði sofna og vakna hlæjandi. Draumaruglið sem heilinn nær að framkalla strax þegar svefninn er að síga á getur verið algerlega drepfyndið í óskiljanleik sínum. Og maður þarf ekki annað en svífa augnablik inní dagvitundina til að fatta það. Og flissið fjarar svo út meðan skynjunin hverfur manni.
Þegar ég vaknaði var ég í draumi búinn að leysa lífsgátuna, í félagi við einhverja aðila þarna innan í heilabúinu. Lausin var þessi: Notkun sérstakrar yfirdróttsferðar.
Um leið losaði ég svefninn og fann hvað þetta var absúrd lausn. Vaknaði hlæjandi.
Ég veit ekki hvað þetta táknar, þótt ekki hafi það farið nokkuð á milli mála þegar ég svaf. Einhver?