Hið lága plan
„Stærsta SMS kosning í sögu símafélaganna“, segir Net-Mogginn. Ég hef aldrei skilið svona kosningasmalanir. Á þetta ekki að snúast um það hver er bestur og hæfastur? Þurfa Íslendingar alltaf að breyta öllu í íþróttir og halda með einhverju liði, burt séð frá gæðum þess? Hvernig getur nokkurn tíma verið eitthvað að marka keppnir eins og Magna-keppnina eða Júróvisjón, þegar múgur manns fer ekkert eftir smekk sínum heldur fylkir sér saman um „okkar mann“?