« Farðu í rassgat Raufarhöfn | Main | Prufa »

Hið lága plan

Stærsta SMS kosning í sögu símafélaganna“, segir Net-Mogginn. Ég hef aldrei skilið svona kosningasmalanir. Á þetta ekki að snúast um það hver er bestur og hæfastur? Þurfa Íslendingar alltaf að breyta öllu í íþróttir og halda með einhverju liði, burt séð frá gæðum þess? Hvernig getur nokkurn tíma verið eitthvað að marka keppnir eins og Magna-keppnina eða Júróvisjón, þegar múgur manns fer ekkert eftir smekk sínum heldur fylkir sér saman um „okkar mann“?

Þetta er á svo lágu plani að sem betur fer er mér skítsama um allt klabbið. Hef hvorki fylgst með Magnanum né Evrósjón árum saman. Læt skrílnum það eftir að draga kosningar um gæði listsköpunar niður í íþróttasvaðið.

Ekki það að listsköpun sé eitthvað til að keppa í til að byrja með.

Viðbætur (23)

Andý Gúgú :

Þetta er eins og talað úr mínum munni , við hjónin voru einmitt að ræða þetta í dag.

Sko, þú misskilur aðeins, þegar maður kýs Magna þá er maður fyrst og fremst kjósa á móti hljómsveitinni Á móti sól. Með því að kjósa hann þá höfum við vonandi náð að eyðileggja þá hljómsveit þannig að þeir munu ekki gefa út annan coverlaga disk þar sem þeir slátra klassískum íslenskum lögum.

tj:

Ég held að "kosningar um gæði listsköpunar" nái nú ekki yfir Rock Star dótið. Þetta er meira svona "létt skemmtun í sjónvarpi" og hluti af prógramminu er kosningin sem er í íþróttaanda. Fólk hvatt til þess að kjósa aftur og aftur...

Það var og. Eins gott að ég er ekki að fylgjast með þessu og lifa mig inn í þetta. Landar mínir geta þá rúnkast í þessum þjóðrembuplebbisma án minna afskipta.

En mikið er þetta greinilega heimskt. Erum við öll að breytast í fávita?

Pete Best:

Hvernig stendur á því að gítarleikarinn fær alltaf fleiri stelpur en hinir í hljómsveitinni? Oft velt þessu fyrir mér.

steinn:

Saurgerlar og plebbismi á borð við:
Magna Rockstar Supernova, Júróvision, Idolið, o.fl.

Ég hef kosið að lifa utan við þetta sem og svo margt annað sem betur fer. Keppnir í hinu og þessu finnst mér vera af hinu heimska og hugtakið + fullyrðingar um það að einhver sé bestur, (það á við um allt), er það alheimskasta og bjánalegasta hugtak í heilabúi fólks sem til er, þoli ekki þegar einhver segir mér að hinn og þessi sé bestur.
"Létt skemmtun" í hinum og þessum keppnum finnst mér vera eitt af því ömurlegasta sem til er. Mín vegna getur þjóðin runkað sér yfir þessu, ég eyði ekki orku eða tíma í slíkt óþarfa rúnk. Gef skít í þetta drasl.

Orri:

Þú gerðir góða keppni í Popppunkti, Steinn. :)

steinn:

Æ já Orri, ég lét plata mig í þá keppni á sínum tíma,
ég sé ekki eftir að hafa tapað í öll þrjú skiptin sem ég tók þátt í þeirri keppni,
ég tók ákvörðun um það eftir þriðja og síðasta skiptið í þeim þætti að taka aldrei framar þátt í keppnum framar og forðast að vera í sjónvarpi, við það hef ég staðið við hingað til og ætla mér að standa við það áfram,
keppnir eru ekki fyrir mig og ég gef lítið og nánast ekkert fyrir slíkt.
Vandamálið er það að fólk ofmetur mig sem eitthvert heilabú varðandi tónlistarsögu og hef verið fengin í hitt og þetta, tildæmis þessa keppni sem hét Popppunktur, allt er þegar þrennt er, ekki fleiri keppnir það sem eftir er af ævi minni.
Nóg komið af slíku rugli.

Til umheimsins - hættið að ofmeta mig !

Æ já Orri minn, ég hef víst fortíð :-)

Rakst hér óvart inn. Snilldarpistlar. Óska eftir örari uppfærslum :-)

Rakst hér óvart inn. Snilldarpistlar. Óska eftir örari uppfærslum :-)

Zorglúbb:

www.birgir.com - Þar sem stuðið er! Ekki mikið líf á þessari síðu. Segji það bara.

Zorglúbb:

www.birgir.com - Þar sem stuðið er! Ekki mikið líf á þessari síðu. Segji það bara.

Zorglúbb:

Halló! Einhver heima?

Jón Magnús:

Ég var nú að vinna við að monitora þessar sms kostningu - mjög feginn að þetta sé búið. Vonandi kemst enginn Íslendingur aftur inn í svona keppni sem fer fram um miðja nótt!

Jón Magnús:

Ég var nú að vinna við að monitora þessar sms kostningu - mjög feginn að þetta sé búið. Vonandi kemst enginn Íslendingur aftur inn í svona keppni sem fer fram um miðja nótt!

Tryggvi:


Þetta er nú meira ánsgodans ruglið alltsaman.

Ha.

Tryggvi:


Þetta er nú meira ánsgodans ruglið alltsaman.

Ha.

Því miður er vefumsýslukerfið búið að vera óvirkt síðustu vikurnar og ég nenni ekki að laga það. Þetta drasl er alltaf að bila og það eitt og sér fælir mann frá að halda áfram bloggi. Hver nennir að opna bílinn sinn með logsuðutækjum á hverjum morgni?

Hjólajól:

Kemur eitthvað jólalag frá Vantrú í ár?

Helps most men with ED achieve harder erections http://tiny.pl/chzc >erectile dysfunction drug

veistu birgir, ég held að jesú elski þig sama hvað þú segir um hann ;)

veistu birgir, ég held að jesú elski þig sama hvað þú segir um hann ;)

veistu birgir, ég held að jesú elski þig sama hvað þú segir um hann ;)

Bættu við

Um þessa síðu:

Þessi síða hljóðar upp á eina bloggfærslu frá 13. september 2006.

Færslan á undan var Farðu í rassgat Raufarhöfn.

Næsta færsla á eftir er Prufa.

Svo eru margar fleiri á forsíðunni og í safni gamalla færslna.

Powered by
Movable Type 3.31