Archive forJuly, 2008

Ríkur

Vináttan er óendanlega verðmæt og ég er umlukinn góðu og ærlegu fólki.

Comments off

Sópran

Það er einstaklega gefandi að vera á valdi tilfinninga og rannsaka þær um leið, standa bæði innan og utan hringsins í einu. Nú hlusta á ég á tvö kórlög með athyglina límda við tæran sópraninn og fylgist með hvernig hann kryddar boðefnasúpuna í heilanum - sætt, salt og beiskt.

Comments off

Grimmd

Ég á til að slá grimmilega á útrétta hönd þeirra sem vilja vingast við mig, á erfitt með að trúa á heilindi sumra. Veit ekki hvað veldur, en eitthvað hlýtur að orsaka þetta, raunverulegt eða ímyndað. Kannski ég reyni að komast að því, mér líður ekki nógu vel með þetta.

En tvær færslur sem hér voru eru horfnar að ósk þess sem lagði mér til efni í þær.

Comments off

GBT

Eftir atburði helgarinnar kom þetta SMS:

? hvort eg ætti að kalla thig GBT gblettatigur…!

Þá nafnbót skal ég bera með stolti.

Comments off

Erfitt

Ást og gleði, losti og þrár, sorg og söknuður, allt komið í eina bendu innan í mér. Siðferði mitt stuðlar ekki að hamingju nú um stundir. Ég ætla samt að halda mig á mottunni.

Comments off