Bloggið
IFO 28.02.03

Við rifum okkur aftur upp á rassgatinu klukkan sex í morgun til að horfa á geimstöðina. Núna sýndi hún annað tilbrigði og kom út úr skugga jarðar uppi á miðjum himni, rétt við halann á Stóra birni. Og þetta gerði hún nákvæmlega klukkan 06:09:50 eins og forritið spáði.
Frábær fullnæging að sjá hlutina ganga svona eftir uppgefnu plani svo ekki skeikar sekúndu. Þar sem við stóðum og góndum til himins gat ég sagt "einn... tveir... og þrír," og um leið birtist hún, rauð í fyrstu meðan hún var að losna undan skugganum, en síðan bláhvít og björt.
Ég get með góðri samvisku sagt að ég hafi á undanförnum dögum séð tvisvar sinnum fljúgandi furðuhlut. Get meira að segja fullyrt með vissu (og fært rök fyrir) að það voru geimverur innanborðs. Það er meira en margur lúninn getur.
Til að vísa í þessa færslu þá hægrismelltu hér og veldu "Copy Shortcut".
Þetta kom í póstinum áðan:
Delivered-To: birgir.com-birgir@birgir.com
X-Mailer: MIME::Lite 2.117 (F2.6; A1.58; B2.16; Q2.16)
Date: Thu, 27 Feb 2003 11:25:21 UT
To: birgir@birgir.com
From: frsend@mbl.is
Subject: Frétt mbl.is: Skilorðsbundið fangelsi fyrir að skalla
lögreglumann
Einhver hefur kosið að senda þér frétt af mbl.is.
Þú ert vonlaus alkóhólisti og átt þér þann eina séns að láta
vilja þinn og líf lúta handleiðslu guðs, samkvæmt skilningi
þínum á honum. Guð vill að þú sért glaður, hamingjusamur
og frjáls. Hættu að þvælast fyrir honum. Helvíti er í höfðinu
á þér. Það er til lausn. Bill&Bob
Fimmtudagur | 27. febrúar | 2003
Skilorðsbundið fangelsi fyrir að skalla lögreglumann
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt tvítugan karlmann í
3 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að skalla lögreglumann
í andlitið. Þá var sakborningurinn einnig dæmdur til að greiða
lögreglumanninum 50 þúsund krónur í miskabætur.
Já, það er nú meira hvað ég er vonlaus alkóhólisti, dett íða tvisvar á ári og er þá svo mikill hænuhaus að eftir 3 glös ræð ég ekki lengur við hegðun mína.
Takk fyrir ábendinguna, ég mun hér eftir passa að drekka a.m.k. tvisvar í viku, svona til að halda þolinu við. Aðeins þannig getur maður þrifist í mannlegu djammsamfélagi án félagslegrar útskúfunar. Ég sé það núna ;)
Til að vísa í þessa færslu þá hægrismelltu hér og veldu "Copy Shortcut".
ISS 26.02.03
Við faðir minn rifum okkur upp eldsnemma í morgun og röltum niðrá strönd til að líta alþjóðlegu geimstöðina augum, en hún var sýnileg rétt fyrir sólarupprás. Forritið sem ég notaði til að finna út tímann og ferlinn stóðst upp á mínútu og stöðin var björt og glæsileg eins og reikistjarna þar sem hún æddi yfir.
Til að vísa í þessa færslu þá hægrismelltu hér og veldu "Copy Shortcut".
Mér þykir fátt leiðinlegra en að skemmta mér. Kannski það sé vegna þess að ég get orðið nokkuð stjórnlaus í kjaftinum þegar ég er undir áhrifum. Eða kannski af því að drukkinn fer ég jafnan í sjálfsmorðshugleiðingar, fyllist öflugu sjálfshatri og fyrirlitningu á heiminum.
Lét þó verða af því í gær að skella mér út á lífið, í fyrsta sinn hér á Gran Canaria. Fór út að borða með þremur sætum íslenskum stelpum sem búa hér um þessar mundir. Svo var steðjað á bari og diskótek.
Þegar maður drekkur svona lítið eins og ég hef gert að undanförnu verður maður auðvitað alger hænuhaus. Því leið ekki á löngu uns ég var farinn að rífa kjaft við einhverja Spánverja, þurfti voða mikið að sannfæra þá um að trúarbrögð þeirra væru bull. Það hefur örugglega ekki verið mikil skemmtun af mér. Ein sæta stelpan sagðist í það minnsta vel skilja hvers vegna ég ætti ekki konu. Hitti naglann á höfuðið, hver nennir að púkka upp á svona reifíng lúnatikk?
Blakkaði svo át á diskótekinu Joy, enda með hreint viskí í glasinu eins og fífl. Skrönglaðist þaðan 鷗 undir morgun og niður á strönd til að farga mér í sjónum, en hundskaðist heim og sofnaði úti á hlaði, þar sem faðir minn fann mig nokkrum stundum síðar.
Það verður bið á því að ég lyfti mér upp aftur.
Til að vísa í þessa færslu þá hægrismelltu hér og veldu "Copy Shortcut".
Vaknaði upp skellihlæjandi í fyrrinótt. Í drauminum hafði ég verið að lesa Séð og heyrt.
Þar var til umræðu drengur sem ólst upp í sömu götu og ég. Við skulum kalla hann Bárð Stígsson. Fyrirsögn greinarinnar var "Bárður Stígsson ríður rækjum!"* Undir fyrirsögninni var mynd af Bárði þar sem hann situr fyrir nakinn með lafandi risastóran göndul. Önnur mynd á opnunni sýndi hann vera að troða þessu typpi inn í stóra hrúgu af pilluðum rækjum með miklum frygðarsvip og mátti ráða af myndinni að hann tæki við athöfnina eina og eina lúku úr hrúgunni og styngi upp í sig.
Svo var stutt viðtal ásamt mynd við móður hans sem sagði þau hjónin vera búin að sætta sig við þetta óeðli sonarins og væru á fullu að gera gott úr þessu.
Ég er búinn að vera að flissa af þessu með sjálfum mér í tvo daga. Langaði bara svona að deila þessu með ykkur.
* "Í dag er það íslensk tónlist sem ríður rækjum." Þetta mismæli er komið frá Magnúsi Einarssyni á Rás 2. Honum tókst að mismæla sig aftur þegar hann reyndi að leiðrétta sig og sagði þá eitthvað á þessa leið: "Afsakið góðir hlustendur, en ég átti auðvitað við að í dag er það íslensk tónlist sem rækjum ríður."
Til að vísa í þessa færslu þá hægrismelltu hér og veldu "Copy Shortcut".
Gott fólk, ég var að asnast til að lesa yfir þýðingu mína á Maðurinn sem hélt að konan sín væri hattur, nýbúinn að benda trústrikara að nafni ratatoskur á að lesa hana sér til skemmtunar. Ein setning þarna sló mig mjög:
Gagnaugablöð Dr P. voru augljóslega ósködduð, heilabörkurinn réð með miklum ágætum við tónlist.
Nú er það svo að téð gagnaugablöð heilans eru það svæði þar sem trúarupplifanir verða, þ.e. ef þau eru sködduð af dökkum blettum sem valda sérstökum flogum. Þetta kveikti í huga mér þá spurningu hvort þarna sé komin ástæðan fyir því hve vangefin tónlistin er ævinlega á trúarsamkomum þeim sem maður sér á Ómega, steingelt kántrí eða þaðan af verra tveggja hljóma kassargítargutl.
Hvað haldið þið? Er tenging?
Önnur spurning sprettur einnig fram: Nú hefur mér virst sem mjög trúað fólk sé í mörgum tilfellum oft annað hvort svellandi af mælsku (eldpredikarar) eða nánast gersamlega ófært um að tjá sig af nokkru viti í mæltu og skrifuðu máli. Það svæði heilans sem stjórnar máltjáningu er einmitt líka staðsett í téðum gagnaugablöðum.
Ætli þetta sé tilviljun?
En þá spyrjið þið á móti: "Ef skemmdir á gagnaugablöðum geta bæði átt sök á málstoli og málhæfni, geta þær þá ekki líka bæði valdið tónlistarsnilli sem og Laufdælsku?"
Svar mitt er: John Coltrane.
Til að vísa í þessa færslu þá hægrismelltu hér og veldu "Copy Shortcut".
|