Archive fortilvistin

Nauðgunaruppboð

“Rosalega eru mörg nauðgunaruppboð í blaðinu í dag,” sagði bróðir minn stundarhátt þar sem hann grúfði sig yfir Moggann á æskuheimili okkar. Ætli hann hafi ekki verið um 12 ára gamall.

Ég skimaði yfir öxlina á honum og sjá, auglýsingar um nauðgunaruppboð þöktu næstum heila síðu. Og með tímanum mótaðist í hugskotinu sú hugmynd að fjölmargir nauðgarar væru á ferð í þjóðfélaginu og refsing þeirra fælist í því að selja ofan af þeim.

Nú, löngu eftir að ég er búinn að fatta að þetta heitir nauðungaruppboð, finnst mér hugmyndin góð.

Comments off

Kúkurinn sem aldrei var skitið

Það fer kannski vel á því að ég fjalli aðeins um hinn nýja sambýling minn, enda er hann búinn að vera hér í næstum tvo mánuði.

Ég er að tala um hundinn Orra, frábært lítið afsprengi tveggja dúndurvel ræktaðra fíkniefnahunda frá Englandi. Mamma hans, Springer Spaniel, starfar á Seyðisfirði við að þefa uppi laumuspil gamlingja á húsbílum og pabbinn, Labrador, er í álíka djobbi vestur á Ísafirði.

Orri er semsagt bastarður en afar vel innréttaður genetískt. Og svo svakalega er nefið á honum öflugt að hann er sífellt með það niðri í jörðinni utandyra og veit því allt um ferðir Skagamanna frá degi til dags.

Þetta hundahald hefur kallað á dálítið nýja lífshætti og til þess var leikurinn gerður. Daglega heimsækjum við hundasvæði og leikum okkur með bolta, göngum og rannsökum fjörur og móa. Orri þekkir orðið heilmargar dýrategundir með nafni og er að verða öllu vanur þegar kemur að öðrum hundum og fólki.

En einn er sá maður sem hann á erfitt með að bekena. Gamli skröggur í næsta húsi má ekki birtast úti á götu án þess að Orri hreinlega tryllist. Síðast náði hann meira að segja að rífa sig lausan úr taumnum og æða organdi um allt Akratorg. Sennilega er það rússneska loðhúfan sem sá gamli er með á hausnum.

En gamli á líka túnskika hér á bak við húsið, blett sem liggur að bakdyrum mínum og er lítið annað en flag. Mér datt ekki í hug að nokkur maður ætti þetta drullusvað með rusli út um allt og hleypi því Orra út á það til að ganga örna sinna dag og nótt. Að sjálfsögðu hirði ég upp eftir hann skítinn og kem af mér í næstu ruslatunnu, en í myrkrinu og kuldanum fyrir skömmu lét ég það dankast eitthvað og á blettinn náðu í trassaskap mínum að safnast svona 4 - 5 kúkar.

Svo kom sá hinn gamli að máli við mig og kvartaði. Þetta var semsagt túnið hans og hann vildi ekki sjá að ég væri að láta hundinn skíta þarna án þess að hirða upp eftir hann. Ég sagði honum eins og var, að þetta hefði verið trassaskapur og aldrei hefði staðið til að láta þetta liggja. Sennilega hefur hann haldið að ég væri að ljúga, því hann fór mikið að tuða um að ekki vildi hann fá þessa kúka í sláttuvélina sína næsta sumar. Svo stóð hann yfir mér eins og einhverjum glæpamanni þegar ég var að hirða þetta upp: “Þarna er einn - og þarna er einn til…”

Morguninn eftir hleypti ég Orra út að pissa og honum, ósýnilegur sem hann er svona kolsvartur, dvaldist í myrkrinu nægilega lengi til að ég gæti veðjað á að hann hefði skitið líka. En það var of dimmt til að fara að leita drulluna uppi og beið ég því með það fram að dagsljósi. Þegar ég svo mætti með allt of stóran plastpoka til að hafa upp á dellunni fann ég enga. Hins vegar stakk allt draslið á túnblettinum mig í augu og endaði ég með að þrífa það allt saman upp, sælgætisbréf, bjórdósir, glerbrot og annað sem nánast þakti túnið. Ekki vildi ég að sá aldni fengi þetta allt í sláttuvélina sína og hugsaði með mér að með þessu væri ég að bæta honum glæp minn.

En kúkinn fann ég ekki.

Ég hleypi Orra enn út á þennan grasblett þegar við á, en fylgi honum nú eftir með plastpoka til að gefa þeim gamla ekki færi á mér. En ég er samt sannfærður um að vera einum kúki á eftir með þennan starfa minn, svo viss er ég um að Orri hafi kúkað þarna eftir að ég týndi upp draslið. Ég bara finn ekki þetta örlagaríka kukk.

Þá hafið þið það. Að öllum líkindum hef ég síðustu vikurnar verið í dauðaleit, með tilheyrandi sálarangist, að kúknum sem aldrei var skitið. Og ég á eftir að leita hans fram á vor.

Comments off

Hér er allt…

Comments off

Yfirdrep

Orð kvöldsins er á dagskrá öll kvöld á þeirri rás sem ég hef kosið mér að hafa opið fyrir. Vemmilegir karlar og kerlingar með grátstaf í kverkunum að þykjast vera voða göfug og góðhjörtuð. Þegar þetta lið byrjar segi ég því oftar en ekki að halda kjafti. Upphátt.

Comments off

Maðurinn er alltaf einn

Ætti maður kannski að fá sér hund?

Comments off

Geðlyfið mitt

Comments off

Tala á milli hjóna

Tek að mér að tala á milli hjóna, með andlegri leiðsögn og bæn. Tímapantanir: hjonatal@birgir.com. Leiðsögnin er án endurgjalds, en tekið er við frjálsum framlögum á 0101-26-021063.

Comments off

Andalæknir

Hef nú nokkra lækningaanda á mínum snærum. Vanti þig að koma sjúkum ættingja eða vini til hjálpar dugir að senda mér beiðni á netfangið andalaeknir@birgir.com og ég mun stefna læknum þessum til hjálpar. Þjónustan er ókeypis, en tekið er við frjálsum framlögum á reikning 0101-26-021063.

Comments off

g-blettatígurinn

Ertu orðin leið á stöðnuðu og tilbreytingarlausu kynlífi? Er g-bletturinn enn sem komið er ófundið fé. Láttu g-blettatígurinn í málið.

Tek að mér að hafa upp á og erta g-bletti fyrir hóflega þóknun. Fyrsti tíminn á sérstöku kynningarverði, 7.500 kr. Djúpum raðfullnægingum lofað og ef til vill skvörti ef við náum vel saman.

Tímapantanir: g-blettatigur@birgir.com

Ég er ekki pimpaður, svo þessi auglýsing hlýtur að vera lögleg, eða hvað?

Comments off

Tek við áheitum

Vegna nýtilkominna tengsla minna við æðri máttarvöld býð ég nú upp á viðtöku áheita. Hægt er að heita á mig um hvað sem hugurinn stendur til og gangi allt eftir má leggja áheitaupphæðina inn á reikning 0101-26-021063.

Þeir segja sem prófað hafa að þetta virki afskaplega vel.

Comments off

· « Previous entries