Main

eilífðarmálin Archives

júlí 22, 2006

Sjötti sunnudagur eftir þrenningarhátíð

Það er ekki hægt að segja að bloggið á kirkjan.is sé sérlega áhugavert. Vikulega birtast pistlar sem heita nöfnum eins og Fjórði sunnudagur eftir þrenningarhátíð, Fimmti sunnudagur eftir þrenningarhátíð o.s.frv. Allt saman er þetta eitthvað óáhugavert rant um snilld einhvers löngu dauðs költleiðtoga, sem búið er að gera svo heilagan að allt sem hann sagði hlýtur að vera æðislegt.

Continue reading "Sjötti sunnudagur eftir þrenningarhátíð" »

Hatur byggt á trú

Enn eitt talandi dæmið um skaðsemi trúarhugmynda:

Maður sem mætti til að mótmælanna með tvo unga syni sína sagðist hafa komið þar sem hann tryði biblíunni, sem segði að samkynhneigð væri synd, hann bætti við að ef samkynhneigðir fengju að hafa sínu fram ættu synir hans enga framtíð.

ágúst 4, 2006

Mikilvægt mál

Ágætur maður spurði mig í morgun mjög mikilvægrar og erfiðrar spurningar:

Heldurðu að skoðanir þínar kosti þig vinnu sem þú hefðir annars fengið?

Ég hef stundum velt þessu fyrir mér. Ég get ekki sagt að ég vaði beinlínis í spiladjobbum, þrátt fyrir sífelldan orðaflaum manna um að ég sé sá albesti, næmasti og listrænasti og ég veit ekki hvað. Sjálfur réði þessi maður, sem spurði mig, mig í tímabundið verkefni í sumar og sagði þá sögu að þegar hann hafi nefnt mig við meðeiganda sinn hafi sá brugðist við með því að segja:

Ha, Bigga Baldurs, er hann ekki bara einhver djöfladýrkandi?

Continue reading "Mikilvægt mál" »

About eilífðarmálin

This page contains an archive of all entries posted to birgir.com in the eilífðarmálin category. They are listed from oldest to newest.

dýrðin is the previous category.

heimsmálin is the next category.

Many more can be found on the main index page or by looking through the archives.

Powered by
Movable Type 3.31