Mellotron
Ég verð á Nasa í kvöld að spila undir hjá MR-ingum sem etja kappi í undankeppni söngkeppni framhaldsskólanna.
Sjóndapur ritstjóri sagður myrða með pennanum
Jæja, þá er Bubbi Morthens búinn að bæta sér í móðursýkiskór þeirra sem saka ritstjóra DV um morð. Hann kann að haga seglum eftir almenningsálitinu hverju sinni og notar svona upphlaup til að gefa alþýðunni nákvæmlega það sem hún vill heyra. Alþýðuhetjan Bubbi.
Ef Jónas Kristjánsson...
...myndi svipta sig lífi núna, væri okkur þá stætt á því að úthrópa Hjálmar Árnason sem morðingja?
Harmleikurinn
Ég treysti mér ekki til að bæta mér í þann hóp sem úthrópar DV af svo mikill hörku. Þetta ber einfaldlega of mikinn keim af galdrafári og krossfestingalosta. Geri frekar þessi skynsamlegu orð Marðar Árnasonar að mínum:
„Harmleikurinn á Ísafirði er þess eðlis að núna eigum við að sýna stillingu og tillitssemi. Við vitum ekki hverjar aðstæður voru, vitum ekki hvernig sjálfsvígið bar að, vitum ekki um atburðarás sem á undan fór. Látum lögregluna og Blaðamannafélagið rannsaka málið, leyfum aðstandendum öllum að ná sér eftir atburðinn. Ræðum málið síðan af yfirvegun og í alvöru.
Þessvegna ætla ég ekki, að minnsta kosti að sinni, að rita nafn mitt undir netáskorun þar sem sökudólgur hefur þegar verið fundinn og skal refsað strax.
Ég skrifa ekki heldur undir áskorunina.
Svefntruflanir
Alveg frá áramótum ef ég verið fórnarlamb insomníu einhverskonar. Mér virðist vera orðið fyrirmunað að verða mér út um almennilegan nætursvefn.


