Delivered-To: birgir.com-birgir@birgir.com 
    From: krossinn@skima.is 
    To: birgir@birgir.com
    Subject: Re: Áskorun 
    Date: Mon, 10 Feb 2003 15:34:42 -0000 
    X-Mailer: Microsoft Outlook Express 5.50.4522.1200 
    
    
    
    Þú skalt ekki freista Drottins Guðs þíns.
    Opnaðu hjarta þitt fyrir Guði og gakktu á vegi sannleikans og Guð mun gefa
    þér sinn frið.
    
    
    Gunnar
    
    ---
    
    
    Date : Mon Feb 10 15:41:52 2003 
    From : birgir@birgir.com 
    To : krossinn@skima.is 
    Subject : Re: Áskorun  
     
      
    
    Kæri Gunnar!
    
    Þetta var ömurlega lélegt svar hjá þér og gersamlega ómálefnalegt. 
    Hefurðu engin önnur svör en þetta undanskot?
    
    Það ætti að vera ykkur sjálfum í hag að látið sé reyna á hæfileika 
    Ndifon. Og hver ætti að vera betur til þess fallinn að sýna fram á 
    mátt trúarinnar yfir ólæknandi sjúkdómum en þú, höfuð safnaðarins sem 
    boðar bullið til að byrja með? Eða ertu kannski ekki nógu sterkur í 
    trúnni?
    
    Gunnar, ég bý að ágætum innri friði, takk fyrir, og þarf enga 
    yfirnáttúru til að viðhalda honum. Það eina sem pirrar mig öðru 
    hverju er réttlætiskenndin, t.d. þegar lygarar og glæpamenn gera það 
    að lifibrauði sínu að hagnast á neyð náungans, fylla hugi 
    sakleysingja af heimskulegri þvælu og ræna þá sjálfstæðri hugsun 
    sinni.
    
    Ég fer fram á að þú svarir mér aftur og nú með eigin orðum. Sýndu nú 
    að það bærist sjálfstæð hugsun með þér, að þú sért ekki bara 
    endurómur þeirra lygakenninga sem þú aðhyllist.
    
    Áskil mér rétt til að birta öll svör þín á opinberum vettvangi ef því 
    er að skipta, því svo mikið finnst mér vera hér í húfi.
    
    BB.
    
     
    ---
    
    Delivered-To: birgir.com-birgir@birgir.com 
    From: krossinn@skima.is
    To: birgir@birgir.com 
    Subject: Re: Áskorun 
    Date: Mon, 10 Feb 2003 16:14:18 -0000 
    X-Mailer: Microsoft Outlook Express 5.50.4522.1200 
    
    
    
    Birgir,
    
    
    Hér er svar þitt:
    
    
    Markúsarguðspjall 16:17-18
    
    
    -17- En þessi tákn munu fylgja þeim, er trúa: Í mínu nafni munu þeir reka út
    illa anda, tala nýjum tungum, -18- taka upp höggorma, og þó að þeir drekki
    eitthvað banvænt, mun þeim ekki verða meint af. Yfir sjúka munu þeir leggja
    hendur, og þeir verða heilir.
    
    
    
    
    Guð blessi þig,
    
    
    
    
    Gunnar
    
    
    ---
    
    
    Date : Mon Feb 10 16:20:27 2003 
    From : birgir@birgir.com
    To : krossinn@skima.is 
    Subject : Markúsarbullspjall 
     
      
    
    Kæri Gunnar!
    
    Núnú, það var eins og mig grunaði, þú átt engin sjálfstæð svör.
    
    Áttarðu þig á því að hann Markús þinn hefur barasta enga lögsögu yfir 
    huga mínum? Ég leyfi mér fullum fetum að halda því fram að það sem 
    þarna stendur sé argasta bull, þar til annað kemur í ljós.
    
    Ef þú vilt sannfæra mig um að þetta sé ekki bull, þá taktu upp 
    eitraðan snák, eða sprautaðu þig með lifrarbólgu C til að geta 
    læknast fyrir trú þína.* Það er allt sem þú þarft að gera til að ég 
    kaupi hugmyndakerfið þitt. Að öðrum kosti ber að afgreiða 
    fullyrðingar ykkar Ndifon og Markúsar sem hverja aðra þvælu sem ekki 
    á sér neina stoð í raunveruleikanum.
    
    Hefurðu áhuga á að bjarga sálu minni eða ekki? Það eina sem ég bið um 
    eru sannanir fyrir afkáralegum fullyrðingum ykkar Ndifon.
    
    Svo bíð ég enn eftir að sjá bærast með þér sjálfstæða hugsun, en 
    kannski það sé borin von.
    
    Bestu kveðjur,
    BB
    
     ---
    
    (Engin frekari svör hafa borist frá Gunnari. Þau verða sett 
    hér inn um leið og þau berast)
    
    ________
    * Í sjálfu skeytinu stóð "læknast af trú þinni", en það er að sjálfsögðu ekki það sem ég átti við.
    
    
     

Til baka

birgir@birgir.com